Daggæsla barna í heimahúsi
Umsókn um niðurgreiðslu vegna daggæslu barna í heimahúsi. Vinsamlega sækið umsókn hér.
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi. Vinsamlega sækið umsókn hér.
Reglur um daggæslu barna í heimahúsum á prentvænu formi.
Reglur um daggæslu barna í heimahúsum
I. I. Um leyfisveitingu
- Félagsmálanefnd Ásahrepps veitir leyfi til gæslu í heimahúsum. Samkvæmt reglugerð um daggæslu í heimahúsum sem sett er með heimild í 35. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 907/2005, ber félagsmálanefnd almenna ábyrgð á velferð barna í sveitarfélaginu og skal sjá til þess að aðbúnaði barna sé ekki áfátt. Félagsmálanefnd ber ábyrgð á því að höfð sé umsjón og eftirlit með starfsemi dagmæðra. Þeir einir, sem hafa leyfi félagsmálanefndar til að taka börn í gæslu í heimahúsum, hafa heimild til að taka greiðslu fyrir slíka gæslu í Ásahreppi.
- Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi skal skilað á skrifstofu Ásahrepps á þar til gerðum eyðublöðum. Skilyrði fyrir leyfisveitingu er skv. 13. gr. reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum.
· Umsækjandi skal vera orðin 20 ára, og hafa sótt námskeið fyrir dagforeldra.
· Heimilt er að veita bráðabirgðaleyfi þar til umsækjandi hefur lokið námskeiði fyrir dagforeldra.
· Læknisvottorð skal staðfesta að umsækjandi og aðrir heimilismenn hafa verið skoðaðir og ekkert fundist athugavert við heilsufar þeirra sem hindrar samvistir við börn.
· Umsækjandi skal leggja fram umsögn síðasta vinnuveitanda eða tveggja ábyrgra aðila. Umsögnin skal bera með sér að umsækjandi teljist hæfur til að taka að sér daggæslu barna.
· Umsækjandi og maki umsækjanda skulu leggja fram sakavottorð. Heimilt er að óska eftir sakavottorði allra sakhæfra aðila á heimilinu.
· Fyrir liggi vottorð um skoðun eldvarnareftirlits á heimilinu.
· Heimilt er að leita umsagnar heilbrigðisnefndar um húsnæði sem nota á til daggæslu.
· Ef umsækjandi býr í fjöleignahúsi skal leggja fram skriflegt samþykki íbúðareigenda í stigagangi, skv. almennum reglum um fjöleignahús.
· Umsækjandi sem býr í leiguhúsnæði skal leggja fram skriflegt samþykki leigusala fyrir daggæslunni.
· Lágmarksleikrými fyrir hvert barn skal vera 3,5 m2 innanhúss, auk þess skal aðstaða til útivistar vera fullnægjandi og hættulaus. - Félagsmálanefnd hefur heimild til að veita leyfi fyrir allt að 4 börnum samtímis, að meðtöldum þeim sem fyrir eru á heimilinu yngri en 6 ára. Ekki er heimilt að hafa fleiri en tvö börn undir eins árs aldri. Leyfisveiting nær til eins árs. Að liðinni eins árs reynslu í starfi skal sótt um endurnýjun leyfisins. Hið endurnýjaða leyfi skal gilda til 4 ára. Við veitingu framhaldsleyfis getur félagsmálanefnd veitt leyfi fyrir 5 börnum enda hafi dagforeldri sýnt hæfni til starfsins og veitt börnunum góðan aðbúnað í hvívetna.
- Við mat umsóknar skal sérstaklega taka tillit til:
· Menntunar, hæfni og starfsreynslu dagforeldris.
· Aðstæðna og húsnæðis, sem nýta á til daggæslunnar.
· Aldurs barnanna.
· Viðverutíma barnanna. - Leyfi til dagvistunar á einkaheimilum er afturkallanlegt, ef forsendur leyfisveitingar bresta. Berist ítrekaðar kvartanir um starf leyfishafa og ef hann sinnir ekki ábendingum og viðvörun forstöðumanns/félagsmálafulltrúa er málinu vísað til ákvörðunar félagsmálanefndar.
II. Umsóknir um vistun barns hjá dagforeldri
- Við upphaf vistunar barns skal dagforeldri og foreldrar undirrita sérstakan samning á þar til gerðu eyðublaði.
- Samningi um gæslu í heimahúsi skal segja upp með minnst 1 mánaðar fyrirvara, á þar til gerðu eyðublaði.
III. Um réttindi og skyldur dagforeldra
- Dagforeldri ber ábyrgð á andlegri og líkamlegri velferð barnsins meðan á dvöl þess hjá dagforeldri stendur og skal hlúa að heilsu þess í sem víðtækustum skilningi. Þetta á jafnt við um fæðuval, tilfinningalíf og félagslega líðan barns. Óheimilt er að beita barn andlegri eða líkamlegri hirtingu.
- Með allar upplýsingar sem dagforeldri fær um hag barns og einkahagi forráðamanna þess skal farið með sem trúnaðarmál.
- Dagforeldri skal sjá um að félagsmálafulltrúi fái jafnóðum upplýsingar um þau börn sem hefja eða ljúka dvöl hjá henni.
- Á hverju gæsluheimili skulu vera leikföng er hæfa aldri og þroska þeirra barna sem þar dvelja.
- Börn skulu daglega fá heitan hádegisverð.
- Ef forráðamaður kýs heldur að barnið fái kaldan fullgildan hádegisverð og dagforeldri fellst á það, er það heimilt. Dagforeldri skal dag hvern skrifa matseðil dagsins svo foreldrar geti fylgst með mataræði barna sinna.
- Börnin skulu njóta útivistar.
- Æskilegt er að dagforeldrar hafi frumkvæði að viðræðum við forráðamenn barnanna og skýri daglega frá því hvernig dagurinn hafi gengið fyrir sig hjá viðkomandi barni.
- Ef barn er vanhirt og/eða á við andlega eða líkamlega örðugleika að stríða, ber dagforeldri þegar í stað að ræða um það við forráðamann. Verði dagforeldri þess áskynja að barn sé vanrækt, uppeldi þess, atlæti eða aðbúnaði ábótavant , ber dagforeldri jafnframt að tilkynna slíkt til félagsmálanefndar í samræmi við barnaverndarlög. Dagforeldrum er ekki skylt að taka barn í gæslu sem er með hita eða greinileg vanlíðunareinkenni vegna sjúkleika.
- Dagforeldri skal hafa aflað skriflegs samþykkis foreldra, ef hann/hún ekur barni í bíl sínum.
- Dagforeldri skal kaupa slysatryggingu vegna barnanna.
- Ef dagforeldri hættir störfum ber að tilkynna það til félagsmálafulltrúa. Ef dagforeldri vill hefja störf á ný skal hann/hún sækja um endurnýjun leyfis.
- Dagforeldri ber að kynna forráðamönnum barns hvaða reglur gilda um daggæslu í heimahúsum áður en gæsla hefst og láta þeim í té eintak af reglum þessum þegar gæsla er ákveðin. Dagforeldri ber einnig að sýna forráðamönnum barnsins gjaldskrá þá sem miðað er við og skýringar við hana og ganga úr skugga um að þeir hafi kynnt sér hana áður en vistun hefst.
IV. Um réttindi og skyldur forráðamanna barna í daggæslu:
- Forráðamenn skulu í samráði við dagforeldri gefa barninu möguleika á minnst viku aðlögunartíma á vist á gæsluheimili. Fyrstu dagana skal forráðamaður dvelja með barni sínu.
- Forráðamenn skulu hafa börnin sín hrein og hlýlega klædd, með viðeigandi skjólfatnað og fatnað til skiptanna ef þess þarf.
- Forráðamanni ber að tilkynna forföll, eða breyttan komutíma barns eins fljótt og auðið er.
- Forráðamenn skulu láta dagforeldri í té upplýsingar um hvar er hægt að ná til þeirra, ef nauðsyn krefur. Einnig að láta strax vita um breytt símanúmer og heimilisfang.
- Við komu og brottför barns skal forráðamaður klæða barn sitt í og úr yfirhöfnum.
- Æskilegt er að forráðamenn spyrjist fyrir um hvernig dagur barnsins hefur gengið fyrir sig, auk þess að ræða við dagforeldri þegar barnið er ekki viðstatt.
- Telji forráðamaður barns eða annar aðili að barn njóti ekki þess aðbúnaðar og atlætis hjá dagforeldri sem því ber, skal hann tilkynna það þegar í stað til félagsmálafulltrúa sem kannar málið.
V. Annað
Að öðru leyti vísast til reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005.
Með útgáfu þessara reglna vill félagsmálanefnd Ásahrepps stuðla að góðri líðan barnanna á heimilunum og jákvæðum samskiptum forráðamanna þeirra og dagforeldra.
Félagsmálafulltrúi hefur umsjón og eftirlit með daggæslu í heimahúsum, jafnframt ber honum að vera dagforeldrum og foreldrum til ráðlegginga.
Allar persónulegar upplýsingar, sem dagforeldri og forráðamenn kunna að fá hverjir um annars hagi vegna þessara samskipta, ber að líta á sem trúnaðarmál.
Samþykkt á fundi félagsmálanefndar 3. febrúar 2006.
Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Ásahrepps 21. febrúar 2006.
