Félagsleg heimaþjónusta
Svör við nokkrum helstu spurningum um félagslega heimaþjónustu:
Hvað er félagsleg heimaþjónusta ?
Með félagslegri heimaþjónustu er átt við;
- aðstoð við heimilishald,
- persónulega umhirðu,
- félagslegan stuðning
- gæslu og umönnun barna og unglinga.
Hvert er markmið félagslegrar heimaþjónustu ?
Markmið þjónustunnar er;
aðstoða einstaklinga og fjölskyldur sem ekki
geta hjálparlaust séð um heimilishald sitt sjálfar.
Þjónustan getur verið tímabundin
eða til lengri tíma eftir aðstæðum hvert sinn.
Hverjir eiga rétt á félagslegri heimaþjónustu?
Þeir sem búa í heimahúsum og geta ekki
vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna,
álags, veikinda, barnsburðar eða fötlunar
sinnt heimilishaldi hjálparlaust.
Réttur til heimaþjónustu er háður því skilyrði
að farið hafi fram einstaklingsbundið mat á þörf viðkomandi.
Hvernig er sótt um félagslega heimaþjónustu?
Umsóknareyðublað má fá á skrifstofu Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu, Austurvegi 4, Hvolsvelli, 2. hæð, skrifstofum sveitarstjórna í viðkomandi sýslum og starfsmönnum félagsþjónustunnar þar.
Sé beiðnin um þjónustuna af heilsufarsástæðum þarf að fylgja henni læknisvottorð. Starfsmenn félagsþjónustunnar fara á heimili umsækjanda og meta þörf hans. Félagsmálanefndir sveitarfélaganna fjalla síðan um umsóknina.
Þjónustusamningur.
Þegar þjónustumat hefur farið fram skal gerður þjónustusamningur við þjónustuþega um þau atriði er þjónustan skal fela í sér. Matið skal endurskoða reglulega. Í kjölfar endurkoðunar skal samningurinn endurskoðaður í samvinnu við þjónustuþega.
Hvað kostar að fá félagslega heimaþjónustu ?
Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu er samþykkt af hverju sveitarfélagi fyrir sig. Hægt er að fá upplýsingar um gjald fyrir hvern klukkutíma þjónustunnar hjá öllum framantöldum aðilum og á heimasíðum þeirra á netinu.
Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu
Austurvegi 4, 860, Hvolsvelli. Sími : 4878125.
