Gjaldskrá

FÉLAGSÞJÓNUSTA RANGÁRVALLA- OG VESTUR SKAFTAFELLSSÝSLU

Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli. Sími 4878125

________________________________________________________________________

Gjaldskrá heimaþjónustu

 

Byggt á grundvelli 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr.  40/1991 og 25. gr. laga um  málefni aldraðra nr. 125/1999.

 

Gjaldskylda fyrir félagslega heimaþjónustu tekur mið af eftirfarandi tekjuþrepum:

 

  • Undanþegnir eru þeir þjónustuþegar sem eingöngu hafa tekjur frá Tryggingastofnun Ríkisins (ellilífeyri, örorkulífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót) eða tekjur undir eða allt að kr. 150.000. Viðmiðunartekjur fyrir hjón eða sambýlisfólk með sameiginlegan fjárhag eru þær sömu, margfaldaðar með 1,6 eða kr. 240.000. Tekjumörk eru endurskoðuð í janúar ár hvert í samræmi við bætur almannatrygginga. - Í útreikningum er tekið er tillit til heildartekna, þar með taldar eru fjármagnstekjur.

 

  • Heimaþjónusta umfram 20 tíma á mánuði er gjaldfrjáls.

 

  • Ákvörðun um lækkun eða niðurfellingu á greiðslu fyrir heimaþjónustu er tekin af starfsfólki félagsþjónustunnar og skal lögð fyrir félagsmálanefnd til afgreiðslu.

 

  • Ákvörðun um synjun á lækkun eða niðurfellingu greiðslu má skjóta til úrskurðarnefndar félagsþjónustu Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu, 150 - Reykjavík. Skal það gert innan fjögurra vikna frá því að svar um synjun berst.

 

Gjaldskráin skiptist í þrjá flokka með tilliti til tekjumarka:

 

Tekjumörk einstaklinga sem búa einir:

 

  • Tekjur allt að kr. 150.000 á mánuði                                                0 kr. klst.
  • Á bilinu kr. 150.000 til 200.000  á mánuði                          500 kr. klst.
  • Á bilinu  kr. 200.000 til 250.000 á mánuði                          750 kr. klst.
  • Yfir kr. 250.000 á mánuði                                                   1000 kr. klst.

 

Tekjumörk hjóna/ sambýlisfólks:

 

  • Tekjur allt að kr. 240.000 á mánuði                                                0 kr. klst.
  • Á bilinu kr. 240.000 til 300.000 á mánuði                           500 kr. klst.
  • Á bilinu kr. 300.000 til 360.000 á mánuði                           750 kr. klst.
  • Yfir kr. 360.000 á mánuði                                                   1000 kr. klst.