Reglur um þjónustu við öryrkja og aldraða í Ásahreppi
Þjónusta við öryrkja og aldraða íbúa í Ásahreppi miðar að því að þeir geti búið eins lengi og unnt er við eðlilegt heimilislíf. Þörf fyrir þjónustu er metin í hverju tilviki af félagsþjónustu og/eða hjúkrunarfræðingi eða lækni heilsugæslu. Leitast er við að veita þá þjónustu sem viðkomandi eða aðrir heimilismenn eru ekki færir um að annast sjálfir. Endurmat á þjónustuþörf fer fram á 6 mánaða fresti eða oftar ef þurfa þykir.Umsjónarmaður þjónustu við aldraða er félagsmálastjóri. Skila skal skriflegri umsókn á skrifstofu félagsmálastjóra að Austurvegi 4, Hvolsvelli, 2. hæð. Umsókn skal undirrituð af umsækjanda og ef um hjón eða sambúðarfólk er að ræða skal umsókn undirrituð af báðum aðilum.
Helstu verkefni:
Félagsleg heimaþjónusta
Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að efla einstaklinginn til sjálfshjálpar, koma í veg fyrir félagslega einangrun og gera honum kleift að búa sem lengst í heimahúsi við sem eðlilegastar aðstæður. Félagsleg heimaþjónusta getur að hámarki orðið 10 klst á viku.
Hámarksfjöldi ferða með þjónustuþega er tvær í viku til innkaupa, læknis- og félagsþjónustu, annarrar opinberrar þjónustu og vegna annarra nauðsynlegra þarfa þjónustuþega. Miðað skal við að þjónustu sé leitað í næstu þjónustumiðstöð (Hellu), en þó geti að hámarki tvær ferðir í mánuði miðast við akstur í Hvolsvöll/Selfoss.
Heimsending matar
Öryrkjar og aldraðir eiga þess kost að fá heimsendan mat, eina máltíð á dag, og er það í samvinnu við Dvalarheimilið Lund. Þjónustuþegar greiða fyrir máltíðina og auk þess heimsendingargjald sem nemur 1 fargjaldi hjá Strætó bs.
Félags- og tómstundastarf
Skipulagt félags- og tómstundastarf fyrir aldraða í Rangárvallasýslu fer fram í Njálsbúð og á Hellu. Hægt er að sækja um akstur til og frá skipulögðu tómstundastarfi á skrifstofu Ásahrepps, Laugalandi og dregst það ekki frá áætluðum tíma í félagslegri heimaþjónustu.
