Hugmyndabanki

Gagnlegar ábendingar: Íbúafundur Ásahrepps, 30.nóvember2010

Samantekt á punktum og ábendingum frá fundarmönnum.

Sorphirða:

2 tunnu lausn fagnað en hefði hefði verði æskilegra að fara út í 3 tunnu lausn. Mætti einnig halda námskeið í jarðgerð til að minnka lífrænan úrgang.

Fræðsla og ábendingar um moltugerð. Jafnvel reyna að fá tilboð í ílát fyrir slíkt (tunnu, kassa eða e-ð álíka) og selja íbúum.

Moltugerð kynnt íbúum + flokkun sorps

Atvinnumál:

Skoða með bætt netsamband, t.d. ljósleiðaratengingu sem gefur möguleika í fjarvinnslu. 

Ráðinn verði ferðamála-og menningarfulltrúi í hlutastarf til að efla ferðaþjónustu í hreppnum.

Stuðla að því að fá ljósleiðara á öll heimili.

Þriggja fasa rafmagn.

Sveitahátíð/Bæjarhátíð í Ásahreppi.

Sérútboð fyrir minni verktaka vegna viðhalds heimreiða

Ljósleiðaravæðing athuga hvort ekki megi kanna áhugann á ljósleiðaravæðingu hjá íbúum.

Jafnræði þarf að skapast varðandi aðgang að þriggja fasa rafmagni.

Vegamál - Samgöngur og umferðaröryggi:

Útbúið verði útivistar og fræðslukort af Ásahreppi.

Reiðleiðum verði fjölgað og þær færðar frá vegum.

Áhugaverðir staðir verði merktir og gerðir aðgengilegir.

Umferðarhraði á Kálfholtsvegi verði að hámarki 70 km á klst. og 50 km á klst. framhjá bæjum.

Reiðvegir – girðingar

Sveitarfélagið sjái um snjóruðning á heimreiðum til lífeyrisþega sem ekki geta séð um þessa hluti sjálfir.

Samræmd reiðvegagerð.

Skapa reglur svo reiðvegir nýtist reiðmönnum almennt.

Girðingar meðfram öllum vegum í sveitarfélaginu þarf að laga. Ásahreppur ýti á Vegagerðina og hvetji til úrbóta.

Lausaganga búfjár - gera átak til að losna við búfé af vegunum og jafnvel banna lausagöngu.

Félagsþjónusta:

Ásahreppur bjóði upp á snjóruðning á heimreiðum til lífeyrisþega, sem geta heilsu sinnar vegna ekki sinnt því sjálfir, enda öryggismál varðandi aðgengi sjúkrabíla og læknis.

Fræðslumál:

Halda námskeið á svæðnu fyrir fólk í rekstri, varðandi bókhald.

Vangaveltur um ávinning íbúa í Ásahreppi af  eignarhlut Ásahrepps í Háskólafélaginu – spurt um hlutverk Háskólafélagsins.

Óskað eftir fræðslu um Vatnajökulsþjóðgarð.

Þurfum að kynna moltugerð fyrir íbúum + flokkun sorps.

Námskeið í heimajarðgerð.

Ljósleiðaratengingar.

Annað:

Hugmyndir af íbúafundinum verði birtar á heimasíðu sveitarfélagsins.

Birta allar fundargerðir + fréttir á heimasíðunni.

Heimasíðan þarf að vera miklu virkari, setja inn fréttir og myndir reglulega.

Borga upp skuldir – hægt að taka lán aftur til framkvæmda ef þarf.

Kaupa eða byggja hús til að setja við Hald á Holtamannaafrétti.

Setja innkaupareglur, viðmiðunarreglur fyrir útboð á heimasíðuna.

Umhverfismál:

Opna möguleika á styrkumsóknum til gönguleiða og merkinga, sbr. styrki til reiðvegagerðar.

Áframhald á uppbyggingu á afréttinum.

26 íbúar mættu á fundinn, fá þeir allir bestu þakkir fyrir gagnlegar ábendingar.