Hagsýni og hamingja

24/01/2012

 

Hagsýni og hamingja 

Deildir Rauða kross Íslands á Suðurlandi, í samstarfi við kirkjur Suðurprófastsdæmis, kvenfélagasamböndin og verkalýðsfélög á Suðurlandi, standa fyrir stuttum og gagnlegum fræðslufyrirlestrum fyrir almenning 

Fyrirlesari er Lára Ómarsdóttir fréttakona, sem á einfaldan og auðskiljanlegan hátt kynnir okkur raunhæfar leiðir til sparnaðar 

Fyrirlestrarnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum: 

Kirkjubæjarklaustur: 31.jan. kl. 17:00 Kapellan á Kirkjubæjarklaustri 

Vík í Mýrdal: 31.jan. kl. 21:00 Víkurkirkja , Vík í Mýrdal 

Uppsveitir Árnessýslu: 2.febr. kl.20:00 Safnaðarheimili Hrunakirkju 

Rangárvallasýslu: 6.febr. kl.20:00 Safnaðarheimilið Hellu 

Árborg: 7.febr. kl.20:00 Safnaðarheimili Selfosskirkju 

Hveragerði: 9.febr. kl.20:00 Safnaðarheimili Hveragerðiskirkju 

Hvetjum alla til að koma og hlusta á léttan og skemmtilegan fyrirlestur og læra leiðir til að vera hagsýn og hamingjusöm um leið og við spörum peninga og tökum á fjármálum heimilisins og fjölskyldunnar 

Aðgangur er ókeypis 

 



Stikkorð:

« Til baka