Almannavarnanefnd Rangárvalla-og Vestur-Skaftafellssýslu
Fundur 25.nóvember 2010
Fundur í Almannavarnanefnd Rangárvalla-og Vestur-Skaftafellssýslu, fimmtudaginn 25. nóvember 2010, haldinn í húsnæði Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu kl. 13:30.
Mætt: Kjartan Þorkelsson, Ásgeir Magnússon, Bryndís Fanney Harðardóttir, Eygló Kristjánsdóttir,Árni Þorgilsson, Ólöf Árnadóttir, Gunnsteinn R. Ómarsson, Eydís Indriðadóttir, Ísólfur Gylfi Pálmason og Kristín Þórðardóttir sem ritaði fundargerð.
1. Kosning formanns, varaformanns og ritara
Kjartan gefur kost á sér áfram til formennsku og er það samþykkt samhljóða.
Kjartan stingur upp á Eygló Kristjánsdóttur sem varaformanni og er það samþykkt samhljóða.
Kristín Þórðardóttir kjörin ritari.
2. Bréf Sigurgeirs Guðmundssonar formanns samgöngu-, hálendis- og umhverfisnefndar Rangárþings ytra vegna byggingar brúar yfir Þverá við Odda kynnt fundarmönnum. Óskað er umsagnar formanns almannavarnanefndar. Fundarmönnum þykir ljóst að brúin er mikilvæg út frá almannavarnasjónarmiðum, m.t.t. rýmingar á Bakkabæjum og í Landeyjum. Formanni falið að svara erindinu.gera grein fyrir afstöðu nefndarinnar.
3. Erindi frá Vinum Þórsmerkur. Óskað er umsagnar formanns almannavarnanefndar um mikilvægi göngubrúar yfir Markarfljót m.t.t. almannavarnasjónarmiða. Umræður um þýðingu brúar m.t.t. almannavarna, t.a.m. ljóst að aldrei yrði rýmt úr Þórsmörk um brúna í hlaupi vegna Kötlugoss heldur yrði fólki ráðlagt að rýma upp í hlíðar. Formanni og sveitarstjóra Rangárþings eystra falið að klára málið í sameiningu.
4. Kjartan fer yfir fyrirhugað starf í almannavörnum næstu mánuði
4.1. Fræðsla fyrir sveitarstjórnarmenn fyrirhuguð í janúar
4.2. Fundaherferð með viðbragðsaðilum, íbúum og hagsmunahópum í janúar
4.2.1.Kynning á dagskrá, drög lögð fram.
Vantar að tilgreina fund í Goðalandi.
4.3. Endurskoðun viðbragðsáætlana skal lokið um 15. febrúar 2011
4.4. Stjórnunaræfing áætluð síðasta laugardag í febrúar
4.5. Vettvangsstjórnarnámskeið á Kirkjubæjarklaustri í mars/apríl 2011
Ennfremur rætt um fyrirhugaðan fund lögreglustjóra með blaðamönnum/fréttamönnum sem verður á næstu vikum.
5. Bryndís Fanney segir frá fundi formanna og svæðisstjórnar í síðastliðinni viku. Í nýútgefinni skýrslu um stöðu verkefna varðandi gosið í Eyjafjallajökli segir að björgunarsveitirnar hafi fengið greitt fyrir þau útgjöld sem þau hafi orðið fyrir vegna gossins en það er ekki rétt. Mat manna að þetta hafi verið óheppileg umfjöllun þar sem sveitirnar séu nú í miklu fjáröflunarstarfi. Rætt um að finna þurfi lausn á þessu máli, ljóst að deilt er um hvenær raunveruleg björgunaraðgerð hafi verið yfirstaðin og hvenær sveitirnar hafi hafið gæslustörf. Lagt fyrir formann svæðisstjórnar að taka saman kostnað hverrar sveitar, bæði hvað varðar björgun og gæslu. Formanni nefndarinnar og formanni svæðisstjórnar falið að vinna saman að framgangi málsins.
6. Trúnaðarmenn almannavarna
Kjartan vekur máls á, að að fenginni reynslu sé það mat aðila að þörf sé á að tilnefna tiltekna íbúa á svæðinu sem svokallaða trúnaðarmenn. Þ.e. íbúa sem hafa beinan aðgang að sveitarstjórum og/eða yfirstjórn lögreglu og öfugt, þannig að hægt sé að meta stöðu í almannavarnaástandi fljótt og vel í samræmi við frásagnir traustra manna. Lögð áhersla á að sambandið sé gagnvirkt. Fundarmönnum lýst vel á þessa hugmynd. Farið verður í það fljótlega með sveitarstjórum að finna heppilegt fólk til starfans.
7. Ólöf Árnadóttir greinir frá miklum áhyggjum fólks af heilsufarslegum afleiðingum öskunnar, streitu hjá fjölskyldum á svæðinu osfrv. en framangreint var til umræðu á fundi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands með fulltrúum Landlæknisembættisins, sóttvarnalæknis ofl.nýverið. Segir marga óvissuþætti um skaðsemi öskunnar úr fjallinu. Fólk kvarti líka yfir skorti á upplýsingum. Segir áform um fastand dálk í Bændablaðinu til miðlunar upplýsinga auk þess sem umfjöllun kemur til með að birtast á heimasíðum Rangárþings eystra og Mýrdalshrepps.
Fundarhlé
Kl. 14 mæta á fundinn Sigurlaug Hjaltadóttir frá Veðurstofu Íslands, Haraldur Johannessen, Jón Bjartmarz og Víðir Reynisson.
8. Eyjafjallajökull og viðvarandi hætta á jöklinum –
Mat á ástandi jökulsins
Sigurlaug fer yfir stöðuna í Eyjafjallajökli um þessar mundir. Segir lítið um skjálftavirkni, hún hafi minnkað jafnt og þétt frá því í sumar. Segir skjálftavirkni ekki benda til þess að Katla sé að bæra á sér. Árstíðabundin sveifla í skjálftavirkni í Goðabungu var snemma á ferðinni í ár, eða í sumar, talið að hún hafi verið vegna bráðnunar íss vegna öskunnar sem var á jöklinum. Vanalega kemur þessi sveifla fram á haustin en nú fyrr þar sem flöturinn var dökkur og hitnaði meira þ.a.l. Segir GPS-mælingar ekki hafa sérstakar upplýsingar fram að færa. Færslan hefur sveiflast dálítið fram og til baka, en það hafa menn ekki séð áður; ýmsar getgátur þó uppi um stöðuna í dag.
Hvað skriðuföll varðar er staðan frá síðasta fundi óbreytt að mestu. Enn möguleiki á eðjuflóðum ef snögghlánar eða í vorleysingum. Ekki mikill snjór á neðanverðum jöklinum. Gjóskutaumar niður í helstu gilin, þ.a. efnið er að skila sér niður. Mikið af ösku enn uppi á Steinafjalli og í Svaðbælisárgilinu. Öskuna skafi í skafla og svo skili hún sér niður í gilið. Sem sagt enn nóg af ösku uppi á jöklinum. Ekki talin mikil hætta áeðjuflóðum nú þegar kaldara er, en enn hætta (eins og áður sagði) ef snögghlýnar. Ekki heldur búíð að útiloka þann möguleika að krapaflóð geti myndast. Farið var í könnunarflug s.l. þriðjudag og á eftir að meta þær upplýsingar sem þar fengust. Í því flugi fékkst einnig staðfest að hlaup hafi farið niður Holtsá. Minni líkur á flekahlaupum þar sem öskulögin væru farin að blandast (fína lagið hefði blandast meira við það grófara).
9. Goslok?
Víðir fer yfir stöðuna að loknu máli Sigurlaugar. Segir það ljóst að gosinu sé lokið. Komi upp eldvirkni í nákominn framtíð sé það þó annað gos. Það er því mat hans að lækka eigi almannavarnastigið. Veðurstofan muni þó áfram „horfa stíft á alla mæla“ og aðrir jarðvísindamenn. Segir ekki breyta miklu praktískt séð; enn séu allir á tánum. En gagnvart fólkinu séu þetta ákveðin skil. Kjartan bætir við að kanna þurfi þá í framhaldinu hvaða ástand sé á jöklinum; þarf að velta því fyrir sér hvort þorandi sé að hleypa ferðamönnum upp á jökulinn. Lögreglan er að fá þó nokkrar fyrirspurnir frá áhugasömum aðilum um ferðir upp á jökulinn. Koma þarf þeim skilaboðum á framfæri að öllum lokunum sé aflétt en ferðir upp á jökul séu varasamar og ekki fyrir óvana.
Framhaldið ákveðið þannig að ríkislögreglustjóri skrifi minnisblað um ákvörðun þessa sem borið yrði undir lögreglustjóra. Dómsmálaráðherra verður svo upplýstur um þessa afstöðu sem verður síðan tilkynnt í fjölmiðlum í framhaldinu. Út úr minnisblaði ríkislögreglustjóra yrði ennfremur útbúið minnisblað til íbúa sem dreift yrði á sama tíma og ákvörðunin verður tilkynnt í fjölmiðlum.
Spurt er hvort þetta hafi áhrif á áframhaldandi bætur mt.t. eignatjóns fólks. Ljóst er að sumar stofnanir setja tímafresti.
Umræður um réttaráhrif ákvörðunar um lækkun viðbúnaðarstigs niður í könnunarstig í framhaldinu.
10. Upplýsingastreymi
Víðir segir frá hugmyndum í sambandi við hvað megi bæta og hvernig megi efla upplýsingastreymi til íbúa á svæðinu. Nefnir áfangaskýrsluna sem dreift var í 900 eintökum í umdæminu, einblöðung sem dreift var í Mýrdals-og Skaftárhreppi og samkomulag sem hefur verið gert við Bændablaðið um áframhaldandi upplýsingamiðlun. Einhver hluti blaðsins helgaður afleiðingum gossins næstu mánuðina.
Haraldur byrjar á að þakka viðstöddum gott samstarf í öllu starfinu undanfarið. Gerir skýrsluna að umræðuefni. Segir mat sitt að ekki sé heppilegt að lýsa yfir goslokum, heldur sé betri leið að lækka viðbúnaðarstigið. Fundarmenn almennt sammála því mati. Umræður um þetta í kjölfarið.
Víðir segir frá samstarfshópi Veðurstofu, Landgræðslu, Vegagerðar, landeigenda ofl. varðandi mat á aðstæðum á svæðinu sem verst varð úti og er enn í hættu vegna eðjuflóða. Einkum rætt um tiltekin býli sem standa hvað verst m.t.t. afleiðinga gossins. Leggja verði kalt mat á það hvað hækkun vegar og brúar yfir Svaðbælisá kostar og vega það og meta m.t.t. hvað það kostar að kaupa upp býlin sem metin eru staðsett utan byggilegra svæða.
Rætt almennt um lærdóm sem draga megi af atburðunum sem fengist hefur verið við undanfarna mánuði.
Kjartan veltir því upp við almannavarnadeildina hvort ástæða sé til að gera hættumat vegna eldvirkni í Vatnajökli. Rætt um að þetta verði metið í samráði við Veðurstofuna.
Sigurlaug bætir við frekari upplýsingum um hættu af brennisteinsuppgufun á gosstöðvum. Menn skyldu hafa varann á, en þetta getur haft alvarlegar áhrif á öndunarfæri.
Fundi slitið kl. 15.
*******************************************************************
Fundur 9.nóvember 2010
Endurrit úr fundargerðarbók Almannavarnanefndar Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu
--ooooOOOOoooo--
Ár 2009, mánudaginn 9. nóvember, er haldinn fundur í Almannavarnanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu á lögreglustöðinni, að Hlíðarvegi 16 Hvolsvelli.
Mætt eru undirrituð.
Kjartan Þorkelsson setur fundinn og kynnir dagskrá hans. Enn fremur eru kynntar breytingar á skipan nefndarinnar. Árni Þorgilsson er nýr fulltrúi Rauða Krossins.
Farið yfir skipan vettvangs- og aðgerðastjórnar að öðru leyti.
Kjartan reifar stöðu fyrirliggjandi mála hjá nefndinni og talar stuttlega um þær viðbragðsáætlanir sem unnar hafa verið á vegum nefndarinnar. Þær eru:
- Bakkaflugvöllur- lokið.
- Svínaflensa- lokið.
o Ólöf Árnadóttir upplýsir fundarmenn um stöðu inflúensufaraldsins og bólusetningaráætlanir.
- Katla- fullbúin áætlun, óundirrituð.
- Eyjafjallajökull-
- - rýming til skoðunar.
- Hekla- áætlun nánast tilbúin.
Enn fremur liggur fyrir að þörf sé á að endurskoða viðbragðsáætlun vegna Suðurlandsskjálfta auk þess sem ætlunin er að ráðast í gerð viðbragðsáætlunar vegna hópslysa.
Áhættugreining fyrir Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Kjartan útbýtir stuttri samantekt til fundarmanna um helstu áhættuþætti í umdæminu. Vísað til frekari umfjöllunar á fundi með Almannavarnadeild RLS síðar í dag.
Kjartan segir frá heimsóknum lögreglustjóra og yfirlögregluþjóns til björgunarsveita á svæðinu. Heimsóttar hafa verið allar sveitir í V-Skaftafellssýslu nema Lífgjöf. Sveitir í Rangárvallasýslu hafa ekki verið heimsóttar enn.
Því næst er fyrirhugaður samstarfssamningur milli Almannavarnarnefndar og björgunarsveita á svæði 16 kynntar fundarmönnum og óskað eftir athugasemdum fundarmanna við hann. Sveinn Pálsson leggur til breytingar á ákvæði 3. mgr. 4. gr. samningsins. Að öðru leyti gera viðstaddir ekki athugasemdir við efni samningsins.
Fjárhagur nefndarinnar yfirfarinn. Staðan er góð og óskar Kjartan eftir samþykki fundarmanna til þess að 2.5 milljónum verði úthlutað til björgunarsveita á svæðinu. Er framkomin tillaga hans samþykkt einróma.
Kjartan kynnir framtíðarsýn embættis síns m.t.t. breytinga á lögregluumdæmum, sérstöðu almannavarna á svæðinu o.s.frv.
Tvö erindi hafa borist nefndinni er varða umsögn nefndarinnar vegna skipulagsmála. Annars vegar barst erindi frá Mýrdalshreppi og hins vegar frá Rangárþingi ytra. Nefndarmenn ræða hvernig nefndin skuli afgreiða slík erindi, hvar valdsvið hennar liggur og hvernig lögbundið hlutverk nefndarinnar skv. byggingar- og skipulagslögum verði uppfyllt. Menn sammála um að nefndin geti trauðla gefið umsagnir í hverju tilviki en ljóst er að mikið af upplýsingum um hættusvæði eru þegar fyrirliggjandi í viðbragðsáætlunum og áhættuskoðunargögnum. Formanni og varaformanni falið að móta afstöðu nefndarinnar.
Sveinn Pálsson ræðir um alvarlega stöðu í Vík vegna ágangs sjávar á byggðina. Formanni og varaformanni falið að semja ályktun nefndarinnar í ljósi þess að lítið þurfi út af að bera svo almannavarnaástand skapist á svæðinu vegna þessa.
Fundargerð upplesin og staðfest,
Kristín Þórðardóttir, ftr. (sign),
Ólöf Árnadóttir, heilsugæsla( sign),
Sveinn Kr. Rúnarsson (sign),
Örn Þórðarson, Rangárþing ytra (sign),
Árni Þorgilssin, Rauðakrossdeild Rang. (sign).
Eydís Þ. Indriðadóttir, Ásahreppi (sign),
Elvar Eyvindsson (sign),
Sveinn Pálsson (sign),
Bjarni Daníelsson (sign),
Bryndís Fanney Harðardóttir( sign),
Kjartan Þorkelsson (sign).
