2. fundur 30. október 2006

19/01/2012

Fundur bókasafnsnefndar Bókasafnsins á LaugalandiHaldinn að Laugalandi mánudaginn 30. október 2006 kl. 15:00 Mætt voru:  Sigurjón Bjarnason, Anna Björg Stefánsdóttir, Þórarinn B. Þórarinsson og  Regula Rudin, sem einnig ritaði fundargerð. Sigurjón setti fundinn og stjórnaði honum.   1.                  Fjárhagsáætlun 2007
Farið var yfir fjárhagsáætlun 2007. Þar kemur fram m.a. kaup á nýrri tölvu. Nefndarmennirnir samþykkja drög að fjárhagsáætlun bókasafnsins með smávægilegri breytingu fyrir sitt leiti.
  2.                  Bókasafnsgjöld til notenda
Ákveðið var að hafa bókasafnsgjöld til notenda safnsins obreytt 1000.- kr. á   heimili. 
 3.                  Útlán og notkun
Útlán og notkun safnsins er stöðug og nýskráning bóka eru 150 titlar síðan í vor.
  4.                  Bókagjafir
Herdís Styrkársdóttir og Jón Ágúst Reynisson , Selás, gáfu bæði barna- og fullorðinsbækur. Nefndin þakkar góðar gjafir.
 
 
Fundargerð lesin upp og samþykkt.                                                                                              Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:45.
 
 
Sigurjón Bjarnason
Anna Björg Stefánsdóttir
Þórarinn B. Þórarinsson
Regula Rudin



Stikkorð:

« Til baka