1. fundur 30. desember 2002
19/01/2012
Búfjáreftirlitsnefnd Rangárvallasýslu.
1.Fundur haldin á hreppsskrifstofu Rangárþings ytra á Hellu 30.desember 2002.
Mætt voru eftirtalir fulltrúar sveitarstjórna í Rangárvallasýslu:
Viðar Hafsteinn Steinarsson tilnefndur af Rangárþingi ytra,
Sigurlaug Leifsdóttir tilnefnd af Rangárþingi eystra,
Egill Sigurðsson tilnefndur af Ásahreppi.
Héraðsnefnd hafði falið Agli að kalla nefndina saman og setti hann því fund og gekk til dagskrár.
1. Nefndin skipti með sér verkum þannig:
Egill Sigurðsson Formaður
Viðar Steinarsson Ritari
Sigurlaug Leifsdóttir Meðstjórnandi.
2. Farið var yfir gögn yfir eftirlistskilda aðila og launakostnað síðasta árs.
Rangárþing eystra 229 aðilar
Rangárþing ytra 166 aðilar
Ásahreppur 50 aðilar
Alls 445 aðilar
Launakostnaður um 1.500.000 kr. (ekki nákvæm tala)
3. Ráðning starfsmanns.
Ákveðið að auglýsa eftir starfskrafti með svofelldum hætti:
“Starfskraftur óskast til starfa við búfláreftirlit í Rangárvallasýslu, samkvæmt lögum um búfjárhald og fl. Nr. 103 frá 15. mars 2002 og reglugerð um búfjárhald og fl. frá 28. okt 2002.
Krafa er gerð um að viðkomandi hafi búfræðimenntun og starfsreynslu í landbúnaði. Um er að ræða starf á verktakagrunni og þarf umsækjandi að hafa bifreið til umráða.” Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2003.
4. Ákveðið að næsti fundur nefndarinnar verði 20. janúar nk.
Ekki fleira fyrir tekið og fundi slitið.
Fundarritari: Viðar Steinarsson
