2. fundur 21. janúar 2003
19/01/2012
Fundargerð.
2. fundur haldinn á hreppsskrifstofu Rangárþings ytra að Laufskálum 2, Hellu 21. janúar 2003.
Mætt eru: Viðar H. Steinarsson, Egill Sigurðsson og Sigurlaug Leifsdóttir. Auk þeirra komu sveitarstjórar Rangárþings ytra og Rangárþings eystra til að ræða fyrirkomulag og kostnaðarskiptingu.
Formaður setur fund og gengur til dagskrár.
1. Farið yfir umsóknir sem borist hafa um starf búfjáreftirlitsmanns.
Eftirtaldir skiluðu inn umsókn, talið upp í stafrófsröð:
· Bergur Pálsson
· Berglind Hlín Baldursdóttir
· Davíð Sigfússon
· Guðlaugur G. Björnsson
· Guðmundur E. Jóelsson
· Guðmundur J. Viðarsson
· Hermann Ingason
· Hilmar V. Gylfason
· Ingvar P. Guðbjörnsson
· Jón Ragnar Björnsson
· Magnús Þ. Magnússon
· Óðinn Örn Jóhannsson
· Ólafur S. Gunnarsson
· Ólafur Helgason
· Steinn Másson
· Þröstur Guðnason
Alls sextán umsóknir.
Nefndin samþykkir að kalla eftirtalda þrjá umsækjendur til viðtals á forsendum menntunar og reynslu samkvæmt umsóknum.
1. Guðmundur E. Jóelsson, kt: 050558-6739
2. Jón Ragnar Björnsson, kt: 210543-3339
3. Óðinn Örn Jóhannsson, kt: 260772-546-
2. Rætt um með hvaða hætti kostnaði við búfjáreftirlitið verður skipt á milli sveitarfélaganna og komu sveitarstjórarnir Guðmundur Ingi og Ágúst Ingi nú inn í umræður með nefndinni.
Voru fundarmenn sammála um að leggja til við sveitarstjórnirnar að kostnaði við sjálft eftirlitið verði skipt eins og hann fellur til í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Yfirstjórnarkostnaði verði skipt eftir fjölda eftirlitsskildra aðila.
Ákveðið að nefndin geri sem fyrst kostnaðaráætlun og leggi fyrir sveitarstjórnirnar. Ákveðið að laun fyrir verktöku við búfjáreftirlit í Rangárvallasýslu verði kr. 1.500.- á klst. Greiðsla fyrir akstur verði eftir ríkistaxta.
Það er sameiginlegur skilningur fundarmanna að nefnd um búfjáreftirlit í Rangárvallasýslu fari með stjórn málaflokksins samkvæmt lögum nr.103 í umboði sveitarstjórna í Rangárvallasýslu. Nú yfirgáfu sveitarstjórarnir tveir fundinn.
3. Ákveðið að nefndin komi næst saman 23. janúar kl. 10.3o á Hellu.
Þá verði áðurnefndir 3 umsækjendur kallaðir til viðtals.
Fleira ekki fyrir tekið og fundi slitið.
Fundarritari: Viðar Steinarsson
