3. fundur 23. janúar 2003

19/01/2012

Fundargerð.

 

3. fundur haldinn á skrifstofu Rangárþings ytra, Laufskálum 2, Hellu, 23. janúar 2003.

 

Mætt:  Egill Sigurðsson, Sigurlaug Leifsdóttir og Viðar H. Steinarsson.

Formaður setur fund og gengur til dagskrár sem er að ræða við þrjá umsækjendur um starf búfjáreftirlitsmanns.

1.     Fyrstur er mættur Jón Ragnar Björnsson.
Farið yfir starfsreynslu, viðhorf til starfs, menntun, mannleg samskipti og fl.  Auk þess hvort viðkomandi hafi starfsaðstöðu á svæðinu.
Allt var jákvætt og getur Jón lagt til starfsaðstöðu heima hjá sér á Arnarsandi 3 á Hellu.
 

2.     Þá mætir Óðinn Örn Jóhannsson.
Farið yfir sömu þætti með honum.
Allt var mjög jákvætt og getur Óðinn fengið starfsaðstöðu hjá Búnaðarsambandi Suðurlands á Hvolsvelli.
 

3.     Þá var gert ráð fyrir að Guðmundur E. Jóelsson mætti til viðtals en hann lét ekki sjá sig né í sér heyra og er þar með úr sögunni.
 

4.     Nefndin kemst að eftirfarandi niðurstöðu:
Nefndin er sammála um að báðir þeir umsækjendur sem til fundar komu séu hæfir til starfans.
Egill og Sigurlaug telja þó að Óðinn hafi forskot á Jón hvað varðar reynslu af störfum fyrir Búnaðarsamband Suðurlands við úttektir og mælingar, einnig að hann er nýlega útskrifaður úr sínu námi og því í betri tengslum við nútíma landbúnað. 
Viðar telur hins vegar að báðir séu jafn hæfir til starfans en vill gefa Jóni Ragnari forskot vegna búsetu á heimasvæði.
Niðurstaða nefndarinnar er að ráða Óðinn Örn Jóhannsson í starf búfjáreftirlitsmanns í Rangárvallasýslu.
 

5.     Nefndin áætlar að koma saman fljótlega í næstu viku til að ganga frá ráðningu Óðins og gera starfs og kostnaðaráætlun.

Fleira ekki fyrir tekið og fundi slitið.

Fundarritari: Viðar Steinarsson.

 



Stikkorð:

« Til baka