4. fundur 30. janúar 2003

19/01/2012

Fundargerð.

 

4. fundur haldinn á Laugalandi 30. janúar 2003.

 

Mætt:  Viðar H. Steinarsson, Egill Sigurðsson og Sigurlaug Leifsdóttir, auk þeirra Óðinn Örn Jóhannsson og Valtýr Valtýsson.

Formaður setur fund og gengur til dagskrár.

 

1.     Ráðningarsamningur við Óðinn Örn.

Valtýr leggur fram drög að verktakasamningi við Óðinn Örn Jóhannsson og útskýrir hann.  Nefndin fer yfir samningsdrögin ásamt Óðni og eru báðir aðilar sáttir við málið eins og það liggur fyrir og undirrita samninginn með fyrirvara um samþykki sveitarfélaganna. Samningurinn er svohljóðandi:

 

Verksamningur

Óðinn Örn Jóhannsson, kt. 260772-5469, hér eftir nefndur verktaki og Búfjáreftirlitsnefnd Rangárvallasýslu, hér eftir nefnd verkkaupi, gera með sér eftirfarandi verksamning:

 

1. gr.

Skilgreining verks

Verktaki tekur að sér starf búfjáreftirlitsmanns hjá verkkaupa við búfjáreftirlit í Rangárvallasýslu sbr. lög um búfjáreftirlit 103/2002 og reglugerð um búfjáreftirlit sem gefin var út af Landbúnaðarráðuneytinu 2002.

 

Verktaki sér sjálfur um að útvega sér starfsaðstöðu og búnað til starfsins á eigin kostnað.

 

2. gr.

Samningstími

Verktaki tekur að sér verkið frá og með 30. janúar 2003. Samningurinn er til eins (1) árs, eða tólf (12) mánaða. Að þeim tíma loknum verður samningurinn endurskoðaður með tilliti til þess hvort aðilar vilja framlengja hann.

 

3. gr.

Vinnutími

Verktaki vinnur eftirlitsstörf á þeim tíma sem hann telur bestan hverju sinni en verklok ákveðinna þátta verksins ákvarðast af fyrrgreindum lögum og reglugerðum um búfjáreftirlit o.fl.

 

Gert er ráð fyrir að hámarki tveggja (2) stunda vinnu að meðaltali fyrir hvern eftirlitsaðila í Rangárvallasýslu fyrir hefðbundin eftirlitsstörf.  Fjöldi eftirlitsaðila er áætlaður 450 og því gert ráð fyrir 900 vinnustundum að meðaltali á ári við hefðbundin eftirlitsstörf.

   

4. gr.

Greiðslur og útgáfa reikninga

Verktaki fær greitt kr 1.500,- (utan vsk) fyrir hverja unna klukkustund.

 

Verktaki skilar sjálfur gjöldum í lífeyrissjóð, orlof er innifalið í greiðslum og hann skilar sjálfur sköttum og öðrum gjöldum af greiðslum sínum.

 

Akstur innan eftirlitssvæðisins skal greiddur á hverjum tíma eftir viðmiðunartaxta sem gefinn er út af RSK.

 

Skipting kostnaðar milli sveitarfélaga vegna vinnu verktaka skal skiptast eftir unnum klukkustundum innan hvers sveitarfélags og aksturskostnaður skal skiptast eftir eknum kílómetrum innan marka hvers sveitarfélags.  Verktaki skal senda reikning, til hvers sveitarfélags fyrir sig, fyrir unnin eftirlitsstörf og aksturskostnað innan marka hvers sveitarfélags. Ásamt reikningi skal verktaki skila vinnuskýrslu um búfjáreftirlit sundurliðað eftir eftirlitsaðilum ásamt skýrslu úr akstursdagbók.

 

Verktaka ber að gera sérstaklega grein fyrir eftirlitsstörfum vegna eftirlitsaðila sem ekki hafa skilað inn búfjáreftirlitsskýrslum skv. IV. kafla reglugerðar um búfjáreftirlit, vegna hugsanlegrar gjaldtöku sveitarfélaganna.

 

 

5. gr.

Vinnufyrirkomulag

Hvað vinnufyrirkomulag varðar vísast til laga um búfjáreftirlit 103/2002 og reglugerð um búfjáreftirlit sem gefin var út af Landbúnaðarráðuneytinu 2002.
 

Ef sérstök verkefni kalla á vegna búfjáreftirlits, sem ekki heyra undir hin hefðbundnu eftirlitsstörf, þarf verktaki að vinna áætlun um verkefnið hvað varðar tíma og kostnað og fá samþykki búfjáreftirlitsnefndar.

 

6. gr.

Trúnaður

Verktaki skal gæta þagnarskyldu um hvaðeina er hann verður áskynja í starfi sínu. Einnig verður verktaki að varðveita allar skýrslur og vinnugögn sem trúnaðarupplýsingar.

 

Laugalandi, 30. janúar 2003           

Samþykkt með fyrirvara um samþykki sveitarstjórna í Rangárvallasýslu.

                                                                    

Óðinn Örn Jóhannsson                               Búfjáreftirlitsnefnd Rangárvallasýslu

 

Valtýr yfirgefur fundinn.

         

 

2.           Starfstilhögun.  Ákveðið að Óðinn Örn geri starfsáætlun sem verði tilbúin til að leggja fyrir nefndina 10. febrúar n.k. Kostnaðaráætlun verði gerð á næsta fundi.  Ákveðið að næsti fundur nefndarinnar verði 10. febrúar kl. 13:00 á Laugalandi.  Einnig ákveðið að nefndin komi síðan saman minnst mánaðarlega fyrst um sinn meðan eftirlitið er að komast í gang. –

         Óðinn yfirgefur fundinn.

 

3.           Nefndarlaun. Nefndin leggur til við sveitarstjórnirnar að fundarlaun verði krónur 10 þúsund fyrir hvern fund en formaður fái 15 þúsund og að hvert sveitarfélag sjái um að greiða sínum fulltrúa.

 

Ekki fleira tekið fyrir.

 



Stikkorð:

« Til baka