7. fundur 9. september 2003
19/01/2012
Búfjáreftirlitsnefnd Rangárvallasýslu.
7. fundur Búfjáreftirlitsnefndar haldinn á Laugarlandi 9. september 2003.
Mætt: Egill, Sigurlaug og Viðar ásamt Óðni eftirlitsmanni.
Formaður setur fund og gengur til dagskrár.
1. Bréf frá hreppsráði Rangárþings ytra vegna bréfs frá landbúnaðarráðuneyti um eftirlit með svínabúum.
1.1..Um almenna ábendingu er að ræða sem ekki á við eftirlit á svæði búfjáreftirlitsnefndar Rangárvallasýslu og vísast til skýrslu búfjáreftirlitsmanns frá 8.9 2003 þar um.
2. Kynning á vorskýrslu búfjáreftirlitsmanns dags. 8.9.2003.
2.1. Nefndin þakkar starfsmanni greinargóða skýrslu og gott starf við mótun eftirlitsins. Vísast að öðru leiti til skýrslunnar sjálfrar hvað þennan lið varðar en hú verður send sérstaklega til allra þriggja sveitarstjórnanna.
3. Nefndin felur formanni að koma sem fyrst á fundi nefndarinnar og eftirlitsmanns með héraðs og yfirdýralæknisembættunum til upplýsingar um eftirfylgni vegna mála sem upp kunna að koma.
4. Lagt fram bréf frá héraðsnefnd Rangárvallasýslu dags.12 maí 2003.undirrituðu af Fannari Jónassyni.
4.1. Héraðsnefnd staðfestir ráðningu Óðins Arnar í starf búfjáreftirlitsmanns samkvæmt fundargerð 3ja fundar búfjáreftirlitsnefndar frá 23. janúar 2003.
4.2. Héraðsnefnd ályktar vegna bókunar búfjáreftirlitsnefndar frá 30. janúar 2003 á fjórða fundi nefndarinnar um nefndarlaun: Héraðsnefnd greiðir búfjáreftirlitsnefnd þóknun fyrir störf samkvæmt samþykkt héraðsnefndar um undirnefndir. Samkvæmt samþykkt héraðsnefndar er þóknun fyrir hvern fund krónur 5000 og formenn nefnda fá 50% álag. Þá er greiddur akstur miðað við ekna kílómetra.
4.3. Nefndin meðtekur boðskap héraðsnefndar samkvæmt lið 4.2. en áskilur sér rétt til að árétta fyrri niðurstöðu sína frá 30 jan s.l. með frekari rökstuðningi síðar.
Fleira ekki fyrir tekið og fundi slitið.
Fundarritari Viðar Steinarsson
