8. fundur 1. mars 2004
19/01/2012
Búfjáreftirlitsnefnd Rangárvallasýslu.
8. fundur Búfjáreftirlitsnefndar haldinn á Laugarlandi 1. mars 2004.
Mætt: Egill, Sigurlaug og Viðar ásamt Óðni eftirlitsmanni.
Formaður setur fund og gengur til dagskrár.
1. Endurnýjun og breytingar á samningi við Óðinn Örn um verktöku við búfjáreftirlit. Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar frá fyrri samningi.
a. Inn komi kostnaður við starfsaðstöðu sem verkkaupi greiði fyrir alls á ári um 150 þúsund krónur.
b. Verktakagreiðslur fyrir búfjáreftirlit verði krónur 1.824 fyrir utan Virðisaukaskatt og fylgi breytingum á launavísitölu.
c. Að samningurinn verði uppsegjanlegur með sex mánaða fyrirvara tvisvar á ári, eða 1. júlí og 1. janúar ár hvert.
d. Gengið verður frá nýjum samningi á næsta fundi nefndarinnar.
2. Fjárhagsáætlun 2004.
a. Formaður leggur fram tillögu að fjárhagsáætlun á næsta fundi þar sem tekið verður tillit til nýs samnings við Óðinn og raunkostnaðar síðasta árs.
3. Önnur mál.
a. Bréf til Héraðsnefndar vegna fundarlauna nefndarinnar
Lagt fram, samþykkt og undirritað bréf til Héraðsnefndar varðandi laun fyrir störf nefndarinnar.
b. Samþykkt að næsti fundur nefndarinnar verði mánudaginn 15. mars n.k. kl. 11 á Laugalandi.
Fleira ekki fyrir tekið og fundi slitið.
Fundarritari Viðar Steinarsson
