9. fundur 15. mars 2004
19/01/2012
Búfjáreftirlitsnefnd Rangárvallasýslu.
9. fundur Búfjáreftirlitsnefndar haldinn á Laugarlandi 15. mars 2004.
Mætt: Egill, Sigurlaug og Viðar ásamt Óðni Erni eftirlitsmanni.
Formaður setur fund og gengur til dagskrár.
1. Endurnýjaður samningur við Óðinn Örn Jóhannsson um búfjáreftirlit. Formaður fer yfir samninginn og skýrir þær breytingar sem orðið hafa frá fyrri samningi.
a. Inn koma greiðslur vegna starfsaðstöðu sem eru nú um 12 þúsund krónur á mánuði.
b. Búfjáreftirlitsnefnd leggur til að kostnaður vegna starfsaðstöðu falli undir sameiginlegan kostnað við búfjáreftirlit og greiðist af Héraðsnefnd.
c. Samningurinn samþykktur og undirritaður af búfjáreftirlitsnefnd og Óðni Erni með fyrirvara um samþykki sveitarstjórna og Héraðsnefndar Rangæinga.
2. Óðinn Örn fór yfir stöðu búfjáreftirlits við vorskoðun 2004. Fram kom að vorskoðun var nær lokið í ytri hluta sýslunnar þ.e. í Ásahreppi og Rangárþingi ytra og vel á veg komin í Rangárþingi eystra.
Fleira ekki fyrir tekið og fundi slitið.
Fundarritari: Viðar Steinarsson.
