Efling sveitarstjórnarstigsins á Suðurlandi

2. fundur starfshóps

um sameiningarkosti sveitarfélaga á Suðurlandi,  

þriðjudaginn 21. september  2010  kl. 12.00 

 

 

Mætt: Aðalsteinn Sveinsson, Aldís Hafsteinsdóttir, Elfa Dögg Þórðardóttir, Guðmundur Baldursson, Gunnar Þorgeirsson, Jóna Sigurbjartsdóttir, Ásgeir Magnússon, Gunnar Örn Marteinsson, Drífa Kristjánsdóttir, Gunnsteinn Ómarsson og Hjalti Vignisson (í símasambandi).  Ragnar Magnússon og Ísólfur Gylfi Pálmason boðuðu forföll.  Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri ritaði fundargerð. 

 

Dagskrá 

 

1.               Formaður nefndarinnar 

Elfa Dögg Þórðardóttir var kosinn formaður nefndarinnar. 

 

2.               Starf nefndarinnar. 

Rætt um áframhald  verkefna nefndarinnar.  Nefndarmenn voru sammála um  að vinna að tillögum um eflingu sveitarstjórnarstigsins  á Suðurlandi þar sem tekið verði tillit til margra þátta, s.s. verkefna, og landfræðilegra aðstæðna. Samþykkt að óska eftir styrk frá Jöfnunarsjóði til  verkefnisins. 

 

Fundi slitið kl. 13.00. 

                                     

                                    Elfa Dögg Þórðardóttir, 

Aðalsteinn Sveinsson,  

Aldís Hafsteinsdóttir,  

Guðmundur Baldursson, 

Gunnar Þorgeirsson,  

Jóna Sigurbjartsdóttir,  

Ásgeir Magnússon,  

Gunnar Örn Marteinsson,  

Drífa Kristjánsdóttir,  

Gunnsteinn Ómarsson, 

Hjalti Vignisson, 

Þorvarður Hjaltason 

 

  __________________________________________________________________________________________________________
 

  3. fundur starfshóps

um sameiningarkosti sveitarfélaga á Suðurlandi,  

þriðjudaginn 21. desember  2010  kl. 12.00 

 

Mætt: Aðalsteinn Sveinsson, Aldís Hafsteinsdóttir, Elfa Dögg Þórðardóttir, Eydís Indriðadóttir,  Guðmundur Baldursson, Gunnar Þorgeirsson, Ásgeir Magnússon, Gunnar Örn Marteinsson, Drífa Kristjánsdóttir, Gunnsteinn Ómarsson, Hjalti Vignisson, Ragnar Magnússon og Ísólfur Gylfi Pálmason.  Jóna Sigurbjartsdóttir boðaði forföll.  Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri ritaði fundargerð. 

 

Dagskrá 

 

1.               Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 20. desember 2010 

Eftir nokkrar umræður var samþykkt að hefja undirbúning að vinnu við verkefni sem hefur það markmið að efla sveitarstjórnarstigið á Suðurlandi. 

 

2.               Skipun verkefnisstjórnar starfshópsins 

Eftirtaldir voru skipaðir í verkefnisstjórn: Hjalti Vignisson, Ásgeir Magnússon, Ísólfur Gylfi Pálmasson, Elfa Dögg Þórðardóttir og Drífa Kristjánsdóttir.   

Verkefnisstjórnin verður boðuð til fundar í byrjun janúar. 

 

3.               Ráðning sérfræðings/ráðgjafa 

Verkefnisstjórn falið að vinna verkefnislýsingu fyrir ráðgjafa.  Starfið verði  auglýst í kjölfarið.  Ráðgjafinn vinni í samvinnu við verkefnisstjórnina og starfsmenn SASS, Skólaskrifstofu og Atvinnuþróunarfélags. 

 

4.               Sameiningarkostir og samvinna sveitarfélaganna 

Lagðir voru fram nokkrir sameiningarkostir sveitarfélaganna.  Samþykkt að skoða  einnig sérstaklega möguleika  á samvinnu sveitarfélaganna á ýmsum sviðum og  skipulag núverandi  samstarfs.  Að því síðasttalda komi þó ekki starfsmenn stofnana á Austurvegi 56. 

 

Fundi slitið kl. 13.10. 

                                     

                                    Elfa Dögg Þórðardóttir 

Aðalsteinn Sveinsson 

Aldís Hafsteinsdóttir 

Eydís Indriðadóttir 

Guðmundur Baldursson 

Gunnar Þorgeirsson 

Ásgeir Magnússon 

Gunnar Örn Marteinsson  

Drífa Kristjánsdóttir  

Gunnsteinn Ómarsson 

Hjalti Vignisson 

Ísólfur Gylfi Pálmason 

Ragnar Magnússon 

Þorvarður Hjaltason