Skólaráð
Fundur í skólaráði 24. mars 2009
Mættir eru Sigurjón Bjarnason, Sigurjón Hjaltason, Grétar Guðmundsson, Bragi Guðmundsson, Kolbrún Sigþórsdóttir, Hulda Brynjólfsdóttir, Borghildur Kristinsdóttir og Ragna Magnúsdóttir.
1. Farið var yfir innra mat skólans. Sjálfsmatsskýrsla 1. hluti skoðuð og rædd, en það er könnun á fæði í mötuneyti skólans annarsvegar og líðan nemenda og starfsfólks hinsvegar. Tæpt var á helstu niðurstöðum.
Fram kom að engra úrbóta er þörf hvað fæðið varðar, nema e.t.v. að birta matseðilinn og mun það verða gert.
Eins kom könnun á líðan mjög vel út og þar sem þörf er á úrbótum var þegar búið að bregðast við. Mun áfram verða fylgst með líðan þeirra sem að stofnuninni koma.
Könnun á stjórnun hefur líka verið lögð fyrir og er verið að vinna úr niðurstöðum hennar. Tölulegar niðurstöður voru skoðaðar og þóttu þær koma vel út fyrir stjórnun skólans og skólann í heild.
Umræður spunnust um jákvætt viðhorf til skólans og fjölbreytni í valgreinum sem gleðja og auka áhuga nemenda.
2. Starfsmannamál. Kolbrún Sigþórsdóttir hefur sótt um launað leyfi og fengið það, Eyrún Jónasdóttir hefur sótt um launalaust leyfi,- báðar til eins árs. Jónella Sigurjónsdóttir mun ekki koma til baka úr árs launalausu leyfi sínu og Sigurlaug Steingrímsdóttir hefur óskað eftir að minnka starfshlutfall sitt um 50%.
Sigurjón telur vandalítið að ráða fólk í þessar stöður, enda eru fyrirspurnir um lausar stöður farnar að berast til skólans.
Þær stöður sem þarf að auglýsa verða auglýstar.
Fyrirspurnir hafa jafnframt borist um komu nýrra nemenda til skólans.
Í lokin spunnust umræður um ýmislegt sem tengist skólastarfinu og voru þær fróðlegar og áhugaverðar.
Fundi slitið 17:25
Hulda Brynjólfsdóttir fundarritari
sign. Grétar H. Guðmundss
sign. Sigurjón Hjaltason
sign. Ragna Magnúsdóttir
sign. Sigurjón Bjarnason
sign. Bragi Guðmundsson
sign. Kolbrún Sigþórsdóttir.
