Sími á skrifstofu: 487 6501 | Hafa samband
Stofnanir

Um Laugaland
Árið 1957 var ákveðið að byggja heimavistarskóla í samvinnu þriggja hreppa, Ásahrepps, Holtahrepps og Landmannahrepps. Staðsetning var ákveðin Laugaland í Holtum. Kennsla hófst að Laugalandi 9. desember 1958, en húsið var fullbúið 1962. Árið 1977 var byggt við skólann og bættist þá við bókasafn, eldhús og borðsalur, íþróttahús með búningsaðstöðu, aðstaða fyrir húsvörð og skrifstofur hreppanna sem byggðu húsið.
Sex starfsmannaíbúðir eru að Laugalandi, þrjár í eigu Ásahrepps og Rangárþings ytra og þrjár í eigu Húsakynna bs.
