Afsláttur fasteignaskatts
Reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum
Reglur um afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi til elli- og örorkulífeyrisþega í sveitarfélaginu Ásahreppi.
1. gr
Fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði í eigu tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega í sveitarfélaginu Ásahreppi sem þeir nýta sjálfir, skal lækkaður eða felldur niður samkvæmt heimild í 4.mgr. 5.gr. laga nr 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
2. gr.
a) eru 67 ára á næsta ári á undan álagningarári eða
b) hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir 1 janúar 2011.
Afslátturinn nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi sannanlega býr í.
3. gr.
Niðurfelling eða lækkun miðar við allar skattskyldar tekjur þ.m.t. fjármagnstekjur ársins 2010 eins og þær eru samkvæmt skattframtali. Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks.
a) Ef um er að ræða einstaklinga;
- með brúttótekjur undir 2.338.735 kr. getur niðurfelling orðið 100%
- með brúttótekjur milli 2.338.736 - 2.703.309 kr. getur niðurfelling orðið 75%
- með brúttótekjur milli 2.703.310 - 3.087.725 kr. getur niðurfelling orðið 50%
- með brúttótekjur milli 3.087.726 - 3.478.340 kr. getur niðurfelling orðið 25%
b) Ef um er að ræða hjón;
- með brúttótekjur undir 3.484.541 kr., getur niðurfelling orðið 100%
- með brúttótekjur milli 3.484.542 - 4.017.762 kr. getur niðurfelling orðið 75%
- með brúttótekjur milli 4.017.763 - 4.544.784 kr. getur niðurfelling orðið 50%
- með brúttótekjur milli 4.544.785 – 5.084.205 kr. getur niðurfelling orðið 25%
Viðmiðunartekjurnar eru heildartekjur umsækjanda og eru framreiknaðar samkv. vísitölu neysluverðs, þ.e tekjur sem mynda álagningarstofn tekjuskatts- útsvars og fjármagnstekjuskatts eins og þessar tekjur voru næsta ári á undan álagningarári.
4. gr.
Við fráfall maka/sambýlismanns tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega er eftirlifandi maka með tekjur allt að 2.945.250 krónur á ári heimilt að sækja um sérstakan afslátt af fasteignaskatti af húsnæði sem hann býr í. Tekjuviðmið eru þau sömu og í 2.gr. um tekjuviðmið.
5.gr.
Örorkulífeyrisþegar fá afslátt samkvæmt 3.gr. gegn framvísun á örorkuskírteini.
Reglur þessar voru samþykktar á fundi hreppsnefndar Ásahrepps þann 21. desember 2010.
Eydís Þ. Indriðadóttir, oddviti.
