Gjaldskrá f.Heklukot og Leikskólinn á Laugalandi
Heklukot og Leikskólinn á Laugalandi
Gjaldskrá:
Gildir frá og með 1. febrúar 2011.
m.v. vísitölu neysluverðs desember 2010: 366,7
Gjald fyrir hverja klst. er 2.800 kr.
Lágmarksvistunartími er 4 klst. á dag. Álag á vistunargjald umfram 8 klst. vistun á dag 20%.
4 klst. vistun kr. 11.200
5 klst. vistun kr. 14.000
6 klst. vistun kr. 16.800
8 klst. vistun kr. 22.400
9 klst. vistun kr. 25.760
Veittir eru afslættir af vistunargjöldum sem hér segir:
5 ára börn Vistun frá kl. 8.00 – 12.00 er gjaldfrjáls síðasta skólaárið í leikskóla.
Einstæðir foreldrar 15% - kr. 420 af verði hverrar klst.
Foreldrar í námi 15% - kr. 420 af verði hverrar klst.
Foreldri öryrki 15% - kr. 420 af verði hverrar klst.
Afslættir reiknast eingöngu af vistunargjöldum og hver greiðandi getur einungis fengið afslátt skv. einum af ofangreindum afsláttarliðum.
Til að öðlast rétt til afsláttar þarf að framvísa eftirtöldum viðurkenndum vottorðum/ staðfestingum:
Einstæðir foreldrar framvísa vottorði um fjölskylduhagi frá Manntali, sem sækja má á skrifstofu Rangárþings ytra á Suðurlandsvegi 1 á Hellu. Í upphafi leikskólagöngu ber að skila slíku vottorði til leikskólastjóra sem jafnframt er ábyrgðarmaður leikskólagjalda. Síðan þarf að skila samskonar vottorði til leikskólastjóra í upphafi hvers leikskólaárs (september), annars getur leikskólastjóri krafist greiðslu vegna leikskólavistar samkvæmt almennri gjaldskrá.
Foreldrar sem falla undir skilgreiningu um fullt skólanám framvísa vottorði/ staðfestingu í upphafi hverrar annar um að þeir stundi fullt nám. Vottorð skóla þarf að tilgreina að um fullt nám í dagskóla sé að ræða. Fullt nám er skilgreint með sama hætti og Lánasjóður íslenskra námsmanna gerir (þ.e. 22 ECTS einingar á önn).
Innheimt er lægra gjald frá þeim degi sem skólavottorði er skilað til leikskólastjóra. Aflsláttur er ekki veittur afturvirkt.
Vakin er athygli á því að ekki er veittur systkinaafsláttur til viðbótar öðrum afláttarkjörum.
Systkinaafsláttur er 50% af vistunargjaldi fyrir annað barna, og 90% af vistunargjaldi fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn eða fleiri. Systkinaafsláttur reiknast alltaf af gjaldi eldra/elsta barns. 5 ára börn, eða þau börn sem eru á síðasta skólaári í leikskóla fá 100% afslátt af vistunargjöldum í allt að fjóra tíma á milli kl. 8.00 og 12.00 í tengslum við aðlögun barnanna að grunnskólanum. Allir greiða fyrir mat og hressingu. Gjald fyrir hverja klst. sem er umfram átta stundir er 3.360. Alltaf er greitt fyrir þá tíma sem eru umfram átta stundir. Gjald fyrir umframtíma ef barn er ekki sótt á réttum tíma eða kemur fyrir umsamdan vistunartíma er 3.360 pr. klst., lágmark er ¼ klst., eða 840 kr.
Gjald fyrir börn í aðlögun er það sama og dvalargjald.
Aukagjald ef barn er sótt of seint kr. 840 hvert skipti.
Álag 50% kr. 1.400 á tímann fyrir börn með lögheimili í öðrum sveitarfélögum en Ásahreppi og Rangárþingi ytra.
Fæði:
Hádegismatur kr. 3.600
Morgunverður kr. 1.662
Síðdegishressing kr. 1.662
Gjaldskráin tekur gildi frá og með 1. febrúar 2011.
