Gjaldskrá fyrir vatnsveitu

Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps kt 480506-0490

Gjaldskrá

Gildir frá og með 1. janúar 2009.

1. Vatnsgjald er 0,23 % af fasteignamati húsa, sem tengst geta vatnsveitu.

 

2. Lágmarksheimæðargjald (jafnaðargjald) vatnsveitu í þéttbýli ( Hellu, Rauðalæk,

Laugalandi, Þykkvabæ ) er kr. 279.288 m.v. 32 þvermál og allt að 25 metra lengd

heimæðar.

Heimæðargjaldið hækkar í samræmi við aukinn sverleika og/eða lengd heimæðar.

 

3. Lágmarksheimæðargjald fyrir býli þar sem aðeins íbúðarhúsnæði er tengt veitu er kr.

418.933 m.v. þvermál heimæðar er 32mm og hámarkslengd heimæðar allt að 200m.

Lágmarksheimæðargjald ( jafnaðargjald ) fyrir býli og atvinnustarfsemi í dreifbýli er kr.

837.923 m.v. þvermál heimæðar allt að 63mm og hámarkslengd heimæðar allt að 200m.

Heimæðargjald fyrir tvíbýli eða fleirbýli er kr. 1.117.148 m.v. þvermál heimæðar að

hverju býli fari ekki yfir 63mm og skal skipta heimæðargjaldinu jafnt á milli viðkomandi

býla eða með öðrum hætti ef ábúendur eða eigendur óska eftir því.

Heimæðargjaldið hækkar í samræmi við aukinn sverleika og/eða lengd heimæðar.

 

4. Heimæðargjald sumabústaða/frístundahúsa er kr. 289.216 m.v. 32mm þvermál og allt að

100 metra lengd heimæðar.

Heimæðargjaldið hækkar í samræmi við aukinn sverleika og/eða lengd heimæðar.

 

5. Heimtaugagjald fyrir beitarhólf, þar sem innifalinn er brynningarstandur óraftengdur,

með skriðloka, uppsettur og tengdur, heimæð m.v. 32 mm. þvermál og allt að 100 m að

lengd, 144.608.-. Heimæðargjald hækkar í samræmi við aukinn sverleika og eða lengd

heimæðar.

 

6. Lágmarksvatnsgjald fyrir vatnsnotkun á landspildu skal vera kr. 15.459,- á ári.

7. Gjald vegna umfram metra á heimæð miðað við sverleika:

 32mm heimæðar umfram viðmið er 728 kr/m m.vsk

 40mm heimæðar umfram viðmið er 773 kr/m m.vsk

 50mm heimæðar umfram viðmið er 819 kr/m m.vsk

 63mm heimæðar umfram viðmið er 865 kr/m m.vsk

8. Heimilt er að dreifa greiðslum heimæðargjalda býla með fullt gjald á allt að 4 ár og býla

þar sem íbúðarhús eitt er tengt og sumarbústaða/frístundahúsa á allt að 3 ár.

9. Gjalddagi er tengidagur og eindagi 30 dögum síðar.

10. Heimæðargjald breytist um sama hlutfall og byggingarvísitala í janúar 2009; 489,6 stig

Hellu, 2. janúar 2009.