Vinnureglur v/styrkir til reiðvegagerða

Vinnureglur hreppsnefndar varðandi styrki til reiðvegagerðar:

 

Ákveðið að veita að hámarki 1.000 kr á lengdarmetra miðað við 3 m breiðan reiðveg. Hámarkslengd sem styrkt er verður 500 m. Umsóknum verður forgangsraðað eftir því sem þær berast. Reiknað er með því að umsækjendur hafi samráð við oddvita um útvegun og keyrslu á efni á staðinn en muni dreifa efninu sjálfur, t.d. með sturtuvagni í reiðvegastæðið. Reiðvegur verði lagður með aðalvegi. Þeir aðilar sem hugsa sér framkvæmdir á reiðvegum sæki um skriflega til hreppsnefndar sem afgreiðir umsóknirnar formlega á fundi.

 

Reglur varðandi styrk á móti kostnaði við niðursetningu rotþróa:

 

Samþykkt er að Ásahreppur útvegar rotþró vegna íbúðarhúsnæðis þar sem höfð er föst búseta. Húseigendur borga sjálfir kostnað vegna niðursetningar og frágangs á rotþró og skulu slíkar framkvæmdir teknar út af byggingarfulltrúa.

 

Reglur um styrki til gerðar deiliskipulags:

 

Samþykkt er að Ásahreppur greiði að hámarki 250.000 kr fyrir hvert deiliskipulagt svæði frá og með 1. jan. 2003, upphæð bundin byggingarvísitölu.