Sveitarfélagið

Þóristunguréttir og Haldréttir á Holtamannaafrétti hefjast kl. 10:00 sunnudaginn 10. september.

sunnudagur, 10. september 2017 - 10:00 to 17:00

Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Ásahrepps lokuð frá og með 3. júlí til og með 31. júlí. Ef erindið þolir ekki bið þá vinsamlega sendið það á asahreppur@asahreppur.is og verður því svarað svo fljótt sem hægt er.

Föstudagur, 14. júlí 2017 - 10:15 to Mánudagur, 31. júlí 2017 - 0:00

 

Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Ásahrepps lokuð frá og með 3. júlí til og með 31. júlí. Ef erindið þolir ekki bið þá vinsamlega sendið það á asahreppur@asahreppur.is og verður því svarað svo fljótt sem hægt er.

Mánudagur, 3. júlí 2017 (All day) to Mánudagur, 31. júlí 2017 (All day)

Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Ásahrepps lokuð frá og með 3. júlí til og með 31. júlí. Ef erindið þolir ekki bið þá vinsamlega sendið það á asahreppur@asahreppur.is og verður því svarað svo fljótt sem hægt er.

 

Mánudagur, 3. júlí 2017 - 10:15 to Mánudagur, 31. júlí 2017 - 10:15

47. fundur (aukafundur) hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps miðvikudaginn 12. júlí kl. 09:00

Miðvikudagur, 12. júlí 2017 - 9:00 to 11:00

Sorpstöð Rangárvallasýslu auglýsir vor- og sumarhreinsun

Dagana 1.júní til 28. júní 2017 verður hreinsunarátak í sveitum á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.  Gámar verða á tímabilinu staðsettir á eftirtöldum stöðum, þ.e. á „gömlu“ gámastæðum þessara staða:

Á gámastæðunum verða gámarnir sem hér segir: 

1.      Skógum, Heimalandi, Fljótshlíð 1. júní til 7. júní.

2.      A-Landeyjum, V-Landeyjum, Bakkabæjum 8. júní til 14. júní.

3.      Rangárvöllum (vegamót Gunnarsholtsvegar og Þingskálavegar), Þykkvabæ, 15. júní til 21. júní.

4.      Hellu og Landvegamótum 22. júní til 28. júní

Sérstaklega skal taka fram að eingöngu verða þar gámar fyrir málma, timbur, grófan úrgang og kör fyrir rafgeyma.  Gámarnir eru eingöngu ætlaðir fyrir fasteignaeigendur á starfssvæði Sorpstöðvar Rangárvallasýslu og eru gjaldfrjálsir.

Ákaflega mikilvægt er að rétt sé flokkað í gámana.  Ef misbrestur verður á því er engin leið önnur en að fjarlægja gámana áður en hreinsunarátakinu lýkur og aðrar leiðir verður að fara í hreinsunarátaki að ári liðnu.  Vart þarf að taka fram að algerlega óheimilt er að setja úrgang utanvið gámana.

Þeir aðilar sem mikið magn úrgangs hafa á sínum búum eða svæðum geta óskað eftir að fá sendan gám eða gáma, eftir umfangi, á þá staði.  Ætlast er til að magn það sem um ræðir fylli þann gám eða þá gáma sem þar verða settir niður.  Sömu flokkunarreglur gilda um þá gáma og aðra gáma sem boðið verður uppá.

Þetta hreinsunarátak á ekki við um svokallað heimilissorp en það er sótt sérstaklega á öll heimili og frístundahúsaeigendur hafa eftirfarandi kosti til að losna við það; Gámavöllur á Strönd, gámavöllur á Hvolsvelli, gámar við Móeiðarhvol og gámaplön við Hellu og Landvegamót.  Rekstrarúrgang og annan úrgang verða íbúar og rekstraraðilar að koma með á móttökustöðina á Strönd eða semja við þjónustuaðila um hirðingu og losun þess úrgangs.  Rúllu- og baggaplast er sótt heim til bænda skv. samkomulagi þeirra við þjónustuaðila.  Einnig er hægt að losna við plastið á gámavöllunum á Strönd og á Hvolsvelli.

Eftir að hreinsunarátakinu lýkur verða allir gámar fjarlægðir og algerlega er óheimilt að afsetja úrgang á þessi svæði.

Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Sigurðsson, starfsmaður Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.

Sími:  487 5157

Tölvupóstur:  strond@rang.is

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs.

Fimmtudagur, 22. júní 2017 (All day) to Miðvikudagur, 28. júní 2017 (All day)
Miðvikudagur, 16. ágúst 2017 - 9:00 to 10:00

Þjóðhátíðardagur Íslendinga verður haldinn hátíðlegur í Ásabrekkuskógi nk. laugardag.

Formlega dagskrá hefst klukkan 11:00.

Mæting kl. 10:30 fyrir þá sem vilja andlitsmálun.

Dagskrá kl. 11:00:

Setning

Einar Mikael töframaður

Fjallmaður

Tónlistaratriði

Ratleikur

Kirkjukórinn

Kl. 12.30 grillveisla með harmonikkuundirspili

Allir velkomnir

Ásahreppur, Kvenfélagið Framtíðin & Skógræktarfélag Rangæinga

Laugardagur, 17. júní 2017 - 11:00 to 13:00

46. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn að Laugalandi.

Miðvikudagur, 14. júní 2017 - 9:00 to 11:00

45. fundur hreppsnefndar verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi.

 

Dagskrá 45. fundar hreppsnefndar dagsettur 10. maí 2017 kl. 9:00

 

  1. Landsvirkjun, rekstur á Þjórsársvæði
  2. Ársreikningur Ásahrepps 2016, síðari umræða
  3. Fundargerðir
  4. Erindi til hreppsnefndar
  5. 17. júní
  6. Umhverfisdagur
  7. Sumarlokun skrifstofu Ásahrepps
  8. Næsti fundur hreppsnefndar

 

 Laugalandi 8. maí 2017, oddviti Ásahrepps

Miðvikudagur, 10. maí 2017 - 9:00

Pages


Þarfnast þessi síða lagfæringar?

Svo hægt sé að hafa samband við þig.