Hin árlega sumargarðveisla verður á Hjúkrunarheimilinu Lundi laugardaginn 4. júní frá kl. 14-16. Starfsmannafélag Lundar mun grilla og selja grillaðar pylsur og gos. (pylsa og gos 500 kr.)
Einnig verður basar starfsmanna á sínum stað en verið er að safna fyrir námsferð. Þar sem safnast hefur vel í kaffibaukinn höfum við fengið til okkar hinn landsfræga Ladda til koma og skemmta ásamt undirleikara í matsal Lundar kl. 15. Vonumst til að sjá sem flesta!. agskrá 33. fundar hreppsnefndar dagsettur 8. júní 2016 kl. 9:00
1. Kerfill
2. Hald
3. Ásabrekkuskógur
4. Heimasíða
5. Merkingar í byggð og á afrétti
6. Fundargerðir
7. Erindi til hreppsnefndar
8. Refaveiði, grenjavinnsla og minkaveiði
9. Sumarfrí og næsti fundur hreppsnefndar
Laugalandi 5. júní 2016, oddviti Ásahrepps