Miðvikudagur, 29. nóvember 2023
Ágætu íbúar Ásahrepps og aðrir hagsmunaaðilar.
Hreppsnefnd Ásahrepps boðar til íbúafundar, sem haldinn verður að Laugalandi (matsal) fimmtudaginn 30. nóvember 2023 og hefst fundurinn klukkan 18:00.
Dagskrá fundarins:
- Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2024-2027 og fjárfestingar næsta árs
- Tekjuskipting milli ríkis og sveitarfélaga af orkumannvirkjum
- Álagning gjalda árið 2024 og breytingar á styrkjum sveitarfélagsins
- Átak í eflingu heislu og félagslegrar virkni íbúa 60 ára og eldri
- Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
- Skipulagsmál
- Staða í sameiningarmálum sveitarfélaga
Í boði verður fundarkaffi.
Íbúar eru hvattir til að mæta og kynna sér málin sem eru á dagskrá og taka þátt í umræðunni um framtíðarverkefni sveitarfélagsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps