Brunavarnir Rangárvallasýslu semja við Trésmiðju Ingólfs á Hellu

Fimmtudagur, 20. febrúar 2020

Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu kom saman til fundar þann 20. febrúar 2020 og undirritaði verksamning við Ingólf Rögnvaldsson frá Trésmiðju Ingólfs ehf um 2. áfanga við byggingu nýrrar slökkvistöðvar á Hellu.  Fyrirtæki Ingólfs átti lægsta tilboð í verkið samtals kr. 32.585.507 en kostnaðaráætlun verksins hljóðaði uppá kr 38..331.646.  Umsjón og eftirlit með verkinu af hálfu verkkaupa verður í höndum Ólafs Rúnarssonar aðstoðarmanns byggingarfulltrúa Rangárþings eystra og eldvarnaeftirlitsmanns Brunavarna Rangárvallasýslu bs. Um er að ræða fullnaðarfrágang við framtíðar slökkvistöð Brunavarna Rangárvallasýslu á Hellu.  Á neðri hæð hússins verður tækjasalur auk snyrtiaðstöðu en á þeirri efri verður starfsmannarými auk skrifstofuaðstöðu.  Heildarverklok eru 15. maí 2020.