Föstudagur, 8. maí 2026
Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Ásahreppi 16. maí 2026 verður haldinn í Miðgarði á Laugalandi. Gengið er inn í húsið að ofanverðu.
Kjörfundur hefst klukkan 10:00 og stendur til 18:00.
Vakin er athygli kjósenda á skyldu til að framvísa persónuskilríkjum óski kjörstjórn eftir því.
Talning atkvæða fer fram á sama stað og er áætlað að talning hefjist klukkan 19:00.
Fyrir hönd kjörstjórnar
Kristín Ósk Ómarsdóttir, formaður
