Samráðsfundir með innviðaráðherra 2025

Mánudagur, 11. ágúst 2025

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar til opinna íbúafunda í ágúst í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins. Tilgangur fundanna er að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði.

Fundirnir eru opnir öllum en hægt er að skrá sig á einstaka fundi hér að neðan. Fundir eru alla jafna haldnir síðdegis og boðið upp á kaffiveitingar á hverjum stað.

Dagskrá funda í ágúst

Dagskrá samráðsfunda og skráningarhlekkir.

Dags. Staðsetning (salur)  Skráning  Fundartími
12. ágúst Akureyri (Múlaberg)  Skráning 16:45-18:15
13. ágúst Borgarnes (Hjálmaklettur)  Skráning 16:30-18:00
18. ágúst Reykjanesbær (Radisson Park Inn)  Skráning 16:30-18:00
19. ágúst Ísafjörður (Edinborgarhúsið)  Skráning 16:30-18:00
20. ágúst Selfoss (Hótel Selfoss)  Skráning 16:30-18:00
25. ágúst Blönduós (Krúttið)  Skráning 16:30-18:00
26. ágúst Egilsstaðir (Hótel Hérað)  Skráning 16:30-18:00
28. ágúst Innviðaþing (Hilton Nordica)  Skráning allan daginn

Innviðaþing 28. ágúst

Innviðaþing verður haldið í fyrsta sinn fimmtudaginn 28. ágúst nk. á Hilton Reykjavík Nordica. Húsið opnar kl. 9 og dagskrá skömmu síðar en þinginu lýkur kl. 16.

Innviðaráðuneytið stendur að þinginu en þar verður sjónum beint að uppbyggingu og öryggi innviða í samgöngum og fjarskiptum, þ.á m. fjárfestingum í innviðum og samfélagslegum ávinningi þeirra. 

Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara verða kynntar síðar. Skráning á Innviðaþingið er á hinn bóginn hafin.

Reglulegt samráð

Samráðsfundir eru ekki eina tækifæri íbúa til að hafa áhrif á stefnumótun ráðuneytisins. Stöðumat og valkostir (þ.e. grænbók) og drög að stefnu (þ.e. hvítbók) eru birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst fólki einnig tækifæri til að senda inn umsagnir og ábendingar. 

Einnig er hægt að senda inn ábendingar í tengslum við þessa fundi á netfang ráðuneytisins - irn@irn.is