Fara í efni
04.11.2026

60 ára og eldri - þjónusta, hreyfing og samvera

Deildu

 

Hvatastyrkur – allt að 75.000 kr. árið 2026

Íbúar Ásahrepps 60 ára og eldri geta sótt um hvatastyrk vegna frístundastarfs og heilsueflingar. Hámarksupphæð styrksins er 75.000 kr. árið 2026. Kvittun þarf að fylgja umsókn. Sækja má um á asahreppur.is/stjornkerfid/umsoknir eða koma með kvittanir á skrifstofu Ásahrepps á Laugalandi og fá aðstoð við umsóknina. Skrifstofan er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 12:00-16:00.

 

Frítt í sund

Aldraðir með lögheimili í Ásahreppi geta fengið gjaldfrjálst árskort í sund, bæði á Laugalandi og á Hellu.

Vetraropnun Laugalandi 2026-2027: Þriðjudagar 15:00 - 19:00 og Fimmtudagar 15:00-19:00

Vetraropnun Hellu 2026-2027:  Virka daga: 06:30-21:00 og helgar: 10:00-16:00

 

Heilsuefling og félagsstarf

Félag eldri borgara í Rangárvallasýslu, FEBRANG, skipuleggur fjölbreytta viðburði, ferðir, fræðslu og vinnustofur. Nánari upplýsingar: febrang.is, febrang@febrang.is og Facebook-síða FEBRANG. Námskeið og önnur heilsuefling eru einnig auglýst á sudurlif.is.

  • Leikfimi: Í íþróttahúsinu á Hellu mánudaga og fimmtudaga kl. 11. Drífa Nikulásdóttir, ÍAK-einkaþjálfari, leiðbeinir. Þátttaka er gjaldfrjáls.
  • Sundleikfimi: Drífa sér einnig um sundleikfimi. Fyrirspurnir: febrang@febrang.is. 
  • Gönguhópurinn Fótfráir Hellubúar: Gengið daglega frá Bogatúni 1 kl. 10:30. Allir velkomnir, einnig fólk utan Hellu.
  • Boccia: Spilað á Hellu og Hvolsvelli tvisvar í viku. Tímasetningar eru auglýstar í upphafi hverrar annar.

     

Félagsþjónusta

Félagsþjónustan veitir öldruðum og aðstandendum ráðgjöf um persónuleg mál, réttindi og þjónustuúrræði, meðal annars félagslega heimaþjónustu, heimsendan mat og mat á dvalarheimili. Skrifstofan er á Suðurlandsvegi 1–3, 2. hæð. Sími: 487 8125. Netfang: felagsmal@felagsmal.is. Vefur: www.felagsogskolamal.is

 

Garðsláttur

Þeir sem ekki treysta sér til að slá garðinn sinn geta fengið garðslátt þrisvar yfir sumarið. Sótt er um hjá skrifstofu Ásahrepps í síma 487 6501 eða með tölvupósti á asahreppur@asahreppur.is. 

 

Með bestu kveðjum,
Ásahreppur