Fara í efni
28.05.2026

Auglýsingar um skipulagsmál

Deildu

AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL

Ásahreppur, Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur

 

Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:

1. Írafossvirkjun; Selfosslína 1 - endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Aðalskipulagsbreyting – 2601055

Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 15. maí 2026, að kynna breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Selfosslína 1 sem liggur frá Ljósafossstöð að Selfossi verður endurnýjuð að hluta. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér að Selfosslína 1 verður endurnýjuð að hluta að Írafoss- og Ljósafossstöðvum. Breytingarnar fela í sér lagningu jarðstrengs á um allt að 3 km leið frá Ljósafossstöð að mastri 8 í núverandi loftlínu. Á kafla verður núverandi loftlínuhluti línunnar tekinn niður. 

 

Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:

2. Hlauptunga L229945 við Brúarfoss; Áningarstaður; Deiliskipulag – 2604039

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 13. maí 2026, að kynna nýtt deiliskipulag sem tekur til Hlauptungu L229945. Um er að ræða skipulag fyrir áningarstað skammt frá Brúarfossi. Skipulagssvæðið er u.þ.b. 826 m² að stærð. Fyrir er á svæðinu malarplan ásamt aðkomuvegi. Landeigendur hafa lagt á bílastæðagjald og hyggjast nota ágóða þess til uppbyggingar á svæðinu, svo sem að leggja bundið slitlag á bílastæði, koma upp salernisaðstöðu og auka upplýsingagjöf, m.a. um hættur á svæðinu.

 

3. Klausturhólar L177600; Uppskipting námusvæðis í tvo hluta; Deiliskipulag – 2511042

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. maí 2026, að kynna nýtt deiliskipulag sem tekur til Klausturhóla. Fyrirhugað deiliskipulag nær til hluta námusvæðis Klausturhólar (E17) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Efnistökusvæðið er um 18 ha að stærð, þar er heimiluð malarnáma fyrir allt að 200.000 m3 ásamt efnislosun. Fyrirhugað er að skipta efnistökusvæðinu í tvennt og verða um 13-15 ha af land innan deiliskipulagssvæðis. Deiliskipulagið mun taka til nýtingu svæðisins og frágangi þess til næstu 15 ára en áætlað er að loka svæðinu 2040. Áætlað er að vinna allt að 150.000 m3 af efni úr námunni, samhliða vinnslunni verður unnið að landmótun og frágangi svæðisins. Gerð verður minniháttar breyting á aðalskipulagi þar sem efnistökusvæðinu E17 verður skipt upp í tvennt og verður nýtt svæði skilgreint fyrir norðurhlutann, eða þess hluta svæðis sem nú er innan E17 og innan upprunalands Klausturhóla í Grímsnesi (L168258). Innan þess svæðis verður heimiluð efnistaka fyrir allt að 50.000 m3 og verður fyrir utan fyrirhugaða afmörkun á deiliskipulagssvæði. Skilmálar E17 verða því lítt breyttir, umfram það að svæðinu verður skipt upp. 

 

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:

4. Lindarbær 1A L165304; Skilgreining svæðis; Byggingarreitir og aðkoma; Deiliskipulag – 2603077

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 5. maí 2026, að auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til Lindarbæjar 1A L165304. Deiliskipulagið tekur til 3,76 ha afmörkunar á 15 ha spildu undir 3 byggingarreiti fyrir bílskúr við eldra íbúðarhús, nýtt íbúðarhús og bílskúr, gestahús og skemmu/fjárhús/hesthús/reiðhöll með sambyggt gróðurhús. Skipulagssvæðið tekur yfir 3 byggingarreiti og aðkomu að svæðinu. Innan byggingarreita skikans er heimilt að byggja allt að 2000 m2 í samræmi við byggingarheimildir á landbúnaðarlandi.

 

5. Ormsstaðir L168271; Frístundasvæði F66; Deiliskipulag – 2506021

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. maí 2026, að  auglýsa nýtt deiliskipulag sem tekur til frístundasvæðis F66 í landi Ormsstaða. Í skipulaginu felst m.a. skilgreining lóða og byggingarreita og leiðréttingar á legum lóða og vega innan svæðisins. 

 

Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi máls:

 

6. Klausturhólar L177600, Seyðishólar; Námusvæði skipt í tvö svæði; Aðalskipulagsbreyting -2605033

Sveitarstjórn Grímnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 15. maí 2026,  að auglýsa niðurstöðu sveitarfélagsins er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi Grímsnes - og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felst í að skipta upp efnistökusvæðinu á Klausturhólum E17 í tvennt, nýtt svæði, E32 tekur yfir nyrsta hluta svæðisins sem nú er innan E17, þ.e. þess svæðis sem er innan upprunalands Klausturhóla í Grímsnesi L168258. Útmörk verða óbreytt.

 

Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is  og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/. 

 

Mál 1. – 3.  innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 28. maí 2026 með athugasemdarfresti til og með 19. júní 2026.

Mál 4. og 5. innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 28. maí 2026 með athugasemdarfresti til og með 9.júlí 2026.

Mál 6. er birting og tilkynning um niðurstöðu sveitarstjórnar vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi.

 

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.

Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

 

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita

 

Gögnin er einnig hægt að skoða á heimasíðu UTU: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/ og auglýsinguna:  https://www.utu.is/auglysingar/skipulagsauglysing-birt-dags-28-mai-2026/