Fara í efni
15.10.2026

Skipulagsauglýsing birt 15. október 2026

Deildu

AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL

Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur

Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga og skipulagslýsinga eftirfarandi skipulagsáætlana:

1. Vaðholt 2 L219744; Úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2609027

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. október 2026, að kynna tillögu að aðalskipulagsbreytingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að um 5,3 ha lands í landi Ormsstaða breytist úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði.

UPPDRÁTTUR

 

2. Súluholtshjáleiga L166391; Efnistaka E13 og E24; Aðalskipulagsbreyting – 2609013

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 6. október 2026, að kynna skipulagslýsingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að efnistökusvæðin E13 og E24 verða stækkuð og heimiluð meiri efnistaka.

SKIPULAGSLÝSING

MATSSKYLDUFYRIRSPURN

 

Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:

3. Ljósafossskóli L168468; Fjölgun gistirýma; Deiliskipulag – 2403049

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. október 2026, að kynna nýtt deiliskipulag sem tekur til viðskipta- og þjónustulóðar Ljósafossskóla L168468. Í deiliskipulaginu felst heimild til frekari uppbyggingar gististarfsemi á svæðinu, þar á meðal fjölgun gistirýma og uppbygging nýrra gistieininga innan afmarkaðs byggingarreits.

UPPDRÁTTUR

 

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:

4. Heiðargerði 9-19, L166239; Athafnasvæði; Deiliskipulag – 2412025

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum 6. október 2026 að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi fyrir athafnasvæðið AT1 við Heiðargerði, L166239, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er auglýst að nýju þar sem meira en eitt ár er liðið frá því að athugasemdafrestur vegna fyrri auglýsingar rann út og meginforsendur deiliskipulagsins eiga sér stoð í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Innan skipulagssvæðisins eru afmarkaðar 10 lóðir fyrir uppbyggingu hreinnar atvinnustarfsemi. Jafnframt er gert ráð fyrir geymslusvæði og gámasvæði.

UPPDRÁTTUR

GREINARGERÐ

GÁTLISTI

 

5. Reykir L166491; Frístundabyggð; Deiliskipulag – 2411063

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum 7. október 2026 að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi fyrir Reyki, L166491, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er auglýst að nýju þar sem meira en eitt ár er liðið frá því að athugasemdafrestur vegna fyrri auglýsingar rann út og meginforsendur deiliskipulagsins eiga sér stoð í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Deiliskipulagið tekur til Reykja, L166491, í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Innan skipulagssvæðisins eru afmarkaðar fjórar frístundalóðir austast í landi jarðarinnar, að Sandlæk.

UPPDRÁTTUR

 

ATH. Ásmúlasel L224543; Frístundabyggð í landi Ásmúlasels; Deiliskipulag – 2609003

Leiðrétting vegna auglýsingar um skipulagsmál. Vegna villu í skipulagsgögnum sem fylgja auglýsingu um skipulagsmál í prentaðri Dagskrá, er auglýsingin ekki rétt. Unnið verður að leiðréttingu gagnanna í samráði við hönnuð skipulagsins og verður málið auglýst að nýju þegar leiðrétt og uppfærð gögn liggja fyrir. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is  og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.

Mál 1. – 3. innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 15.10.2026 með athugasemdarfresti til og með 06.11.2026.

Mál 4. – 5. innan auglýsingar eru skipulagsmál í auglýsingu frá 15.10.2026 með athugasemdarfresti til og með 27.11.2026.

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.

Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

 

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita