Reglubundin hreinsun rotþróa á vegum UTU á starfssvæði aðildarsveitarfélaganna er í gangi. Mikilvægt er að hlutir séu í lagi til að auðvelda hreinsunaraðilum fyrir og hreinsun gangi greiðlega fyrir sig. Viljum því minna á eftirfarandi atriði:
- Rotþró á að verða aðgengileg, stútar sýnilegir upp úr jörðinni og vel merktir.
- Ekki á að vera lengra í þró en 30 metrar fyrir hreinsibíll sem er 20-30 tonna vörubíll. Ef fjarlægð fer yfir 50 metra þá er ekki hægt að hreinsa þró.
- Ef það er mikill gróður þá þarf að grisja leið að þró og merkja.
- Hreinsa gróður frá stútum ef þarf.
- Stútar á rotþró eiga að lágmarki að vera 110 mm til að barkinn á bílnum komist niður í þrónna.
- Gæta þarf þess að hreinsibifreið komi ekki að lokuðu hliði og það sé nógu stórt til að stór bíll komist í gegn. Aðgangsupplýsingum um hlið eða aðrar hindranir þurfa að berast til seyra@seyra.is eða í síma 4805550.
- Ef rotþró er staðsett í gripagirðingu með rafmagni þá þarf að vera gönguhlið til staðar svo hreinsunaraðilar geti gengið um.
- Gæta þarf að því að trjágreinar slúti ekki yfir heimreið svo að seyrubíllinn komist í gegn að rotþró.
- Vinsamlega athugið að hvorki er hægt að segja til um hvenær hreinsunaraðili tæmir né óska eftir ákveðnum hreinsunartíma.
- Ef verið er að skipta um eða breyta rotþró þá vinsamlega sendið upplýsingar um endurnýjun á seyra@seyra.is
Hvetjum til að huga að aðstæðum í kringum þró svo hreinsibifreið og starfsmenn komist að þró til að hreinsa hana en eigendur eru ábyrgir fyrir að tryggja aðgengi að þró. Viljum samt koma því á framfæri að allajafnan er aðgengi gott að þróm og þökkum sýndan skilning þar sem svo er.
Hægt er að skoða framvindu hreinsana og upplýsingar um sína rotþró inn á kortasjá UTU undir veitur – fráveita – rotþrær, sjá nánar hér: Kortasjá
Ef rotþróin er stífluð hafið samband við fagaðila til að greina vandann sem er yfirleitt ekki út af því að rotþróin sé full. Oft er bilun m.a. vegna þess að:
- Siturbeð er orðið stíflað, rennur ekki frá þrónni. (mýrlendi, miklar rigningar, nær ekki að drena í jarðveginn).
- Rotþróin missigið og hallar að stút inn í þró.
- Rotþró of lítil miðað við umgengni/starfsemi.
Upplýsingar og leiðbeiningar um fráveitumál, þar á meðal rotþrær, siturlagnir og endurnýjun á kerfi má nálgast á vef Umhverfisstofnunar.
Allar nánari upplýsingar um tíðni hreinsana og annað er að finna hér á síðunni seyra.is
