Móttöku- og þjónustufulltrúi
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. óskar eftir að ráða öflugan og jákvæðan móttöku- og þjónustufulltrúa við Móttökustöðina á Strönd. Um er að ræða fjölbreytt og þjónustumiðað starf sem felst einkum í umsjón með móttöku viðskiptavina og úrgangs. Um er að ræða hlutastarf og er vinnutími frá kl. 13-17 alla virka daga.
Helstu verkefni
- Umsjón með móttöku viðskiptavina
- Leiðbeiningar um losun úrgangs
- Greiðslu- og úrgangsskráningar
- Símsvörun og önnur samskipti við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni tengd daglegum rekstri
Hæfniskröfur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta
- Enskukunnátta
- Jákvætt viðmót og þjónustulund
- Sjálfstæði og áreiðanleiki í starfii
Um er að ræða metnaðarfullt starf í umhverfis- og þjónustutengdu starfsumhverfi á traustum og góðum vinnustað. Starfið hentar öllum kynjum og eru áhugasöm hvött til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. er byggðasamlag í eigu Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps sem þjónustar alla Rangárvallasýslu. Þar starfa um 8 starfsmenn í föstu starfi auk 2-3 í hlutastarfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Haukur Þórðarson, framkvæmdastjóri haukur@ry.is eða í síma 855-1757.
Umsóknarfrestur er til og með 10. okt. 2026. Ásamt umsókn skal fylgja starfsferilsskrá/kynning. Senda skal umsóknir á haukur@ry.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
