Fara í efni
11.05.2026

Gamla heimasíðan kveður

Deildu

Það er ánæguefni að ný heimasíða Ásahrepps er komin í loftið. Þó uppsetningu hennar sé ekki að fullu lokið, þá teljum við hana betri kost en gömlu síðuna sem var orðin úrelt á vissum sviðum og takmarkanir á þróun hennar.

Stærsta framförin er að nýja síðan getur tekið á móti gögnum úr fundarkerfi hreppsins þannig að fundargerðir skila sér þar á milli og eins er mögulegt að láta fylgiskjöl fylgja einstökum dagskrárliðum.

Eins er einfaldara að halda utan um einstaka liði og viðhalda síðunni. Þá bíður hún upp á fleiri tungumál, notendur geta sjáfir sent inn viðburði og fleira mætti telja.

En markmiðið er auðvitað að auðvelda aðgengi og bæta upplýsingar fyrir notendur. Vonandi hefur það tekist að einhverju marki, en óskum eftir ábendingum ykkar um það sem betur mætti fara.

 

kveðja,

Valtýr og Guðmundur