Ákveðið er að fara í hreinsunarátak í sveitum á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Gámar verða á staðsettir á eftirtöldum stöðum, þ.e. á „gömlu“ gámastæðum þessara staða:
Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust í Ásahreppi þann 13. sept. Taka þarf aðveitu við Sumarliðabæ í sundur vegna færslu. Verður vatnslaust frá Holtavegi og niður í hluta Ásahrepps, sjá meðfylgjandi mynd.
Vinna við borun nýrrar borholu á Laugalandi í Holtum er hafin. Væntingar eru um að finna heitt vatn og auka þannig nýtanlegan forða Rangárveitna. Í tengslum við borunina verður nú um miðjan mánuð slökkt á dælingu úr nærliggjandi vinnsluholu í þeim tilgangi að tryggja afkastagetu hennar. Búast má lægra hitastigi á vatni hjá viðskiptavinum Rangárveitna austan Laugalands, þar með talið á Hellu og Hvolsvelli. Ekki er gert ráð fyrir að þetta hafi mikil áhrif hjá viðskiptavinum. Gert er ráð fyrir að borunin taki um fjórar vikur og verður vinnsluholan gangsett aftur að borun lokinni.
Nú styttist í skólabyrjun og er það okkur sönn ánægja að geta sagt frá því að skólinn mun útvega öll kennslugögn sem nemendur þurfa á að halda í vetur, s.s. stílabækur, reikningsbækur, blöð og flokkunarspjöld í harðspjaldamöppur. Þá hafa þeir aðgang að ritföngum í skólanum sem venjulega eru til staðar í pennaveskjum þeirra.
Vinna við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er hafin og hefur verið opnað sérstakt vefsvæði tileinkað vinnunni á slóðinni www.co2.is. Almenningur er hvattur til að senda hugmyndir og tillögur að aðgerðum til verkefnisstjórnar á netfangið loftslag@uar.is
Minnum á að þriðjudaginn 6. júní n.k. verður haldinn umhverfisdagur Ásahrepps. Í ár ætlum við að tína rusl með öllum vegum í hreppnum. Vonast er til að sem flestir íbúar sjái sér fært að taka þátt.