Fara í efni

Fréttir

02.05.2025

Sprengingar við Hvammsvirkjun

Vegna jarðvegsvinnu við undirbúning Hvammsvirkjunar má reikna með að verktakar þurfi á næstunni að sprengja berg á svæðinu. Búast má við að einhverjar sprengingar verði flesta daga í sumar, á bilinu frá kl. 8 á morgnana til kl. 19 á daginn. Sprengingar um helgar verða takmarkaðar eins og unnt er.
30.04.2025

Æskulýðssýning Geysis 1. maí kl. 11:00

Æskulýðssýning Hestamannafélagsins Geysis verður haldin í Rangárhöllinni á Hellu 1.maí næstkomandi. Í vetur hefur gríðarlegur fjöldi barna lagt stund á hestamennsku í Rangárvallasýslu og munum þau sýna afrakstur vetursins. Börnin eru á aldrinum 3-18 ára.
23.04.2025

Snjallmælavæðing að hefjast

Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps undirbýr nú snjallmælavæðingu og verða fyrstu skref hennar tekin á næstunni.
11.04.2025

Verkamaður óskast við Sorpstöðina á Strönd

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. óskar eftir að ráða verkamann við sorpmóttöku í 100% starfshlutfall á móttökustöðina á Strönd. Um fjölbreytt og margþætt framtíðarstarf er að ræða. Hjá Sorpstöð Rangárvallasýslu starfa um 7 starfsmenn í föstu starfi auk 3-4 í hlutastarfi. Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. er byggðasamlag í eigu Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps og þjónustar alla Rangárvallasýslu.
11.04.2025

Verkstjóri óskast hjá Sorpstöð Rangárvallasýslu bs.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. óskar eftir að ráða verkstjóra við sorpmóttöku í 100% starfshlutfall á móttökustöðina á Strönd. Um fjölbreytt og margþætt framtíðarstarf er að ræða. Hjá Sorpstöð Rangárvallasýslu starfa um 7 starfsmenn í föstu starfi auk 3-4 í hlutastarfi. Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. er byggðasamlag í eigu Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps og þjónustar alla Rangárvallasýslu.
11.04.2025

Verkamaður óskast við Sorpstöðina á Strönd

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. óskar eftir að ráða verkamann við sorpmóttöku í 100% starfshlutfall á móttökustöðina á Strönd. Um fjölbreytt og margþætt framtíðarstarf er að ræða.
07.04.2025

Leikskólinn Laugalandi óskar eftir að ráða leikskólastjóra

Leikskólastjóri er leiðtogi skólans, veitir faglega forystu og býr yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsfólk.
27.03.2025

Sorpstöð Rangárvallasýslu ræður nýjan framkvæmdastjóra

Víðir Reyr Þórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. en það var samþykkt á stjórnarfundi Sorpstöðvarinnar nýlega.
24.03.2025

Smásagnasamkeppni Goðasteins

Héraðsritið Goðasteinn boðar til smásagnasamkeppni fyrir fjóra elstu árganga grunnskólanna í Rangárvallasýslu.
24.03.2025

Kveiktu á perunni á Hugmyndadögum Suðurlands!

Ertu með brennandi áhuga á hringrásarhagkerfinu, sjálfbærni og nýsköpun? Viltu taka þátt í spennandi hugmyndavinnu, þjálfa hönnunarhugsun þína og þróa lausnir fyrir samfélagið á Suðurlandi?
18.03.2025

VISS, vinnu og hæfingarstöð á Hvolsvelli leitar eftir leiðbeinanda

VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða leiðbeinenda í 55%  stöðu sem fyrst. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu.
10.03.2025

Goðasteinn auglýsir eftir ritstjórnarfólki.

Héraðsnefnd Rangárvallasýslu auglýsir eftir fólki til þess að sitja í ritstjórn héraðsritsins Goðasteins. Ritnefndin er skipuð 5-6 ritnefndarmanneskjum auk ritstjóra og greitt er í verktöku samkvæmt fyrirfram ákveðnum skilyrðum.
04.03.2025

Maíspokar víkja fyrir bréfpokum

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. hefur ákveðið að hætta notkun maíspoka undir lífrænan heimilisúrgang og innleiða notkun bréfpoka í staðinn.
17.02.2025

Skoðunaráætlun Brunavarna 2025

Brunavarnir Rangárvallasýslu auglýsa skoðunaráætlun sína fyrir árið 2025. Eftirtaldir staðir verða skoðaðir af Brunavörnum í ár:
06.02.2025

Móttökustöðin á Strönd lokuð í dag 6. febrúar 2025

Móttökustöðin á Strönd verður lokuð í dag vegna veðurs. Ekki er útlit fyrir að veður gangi almennilega niður fyrr en um 15:00 í dag skv. veðurspá og er vindhæð þannig á Strönd núna að erfitt er að athafna sig á svæðinu.
30.01.2025

Verkefnisstjóri farsældarráðs á Suðurlandi

Vilt þú eiga þátt í mótun og innleiðingu farsældar barna?
18.01.2025

Skrifstofa Ásahrepps er flutt í nýtt húsnæði

Skrifstofa Ásahrepps er flutt í nýtt húsnæði, þ.e. neðri hæð skólastjórabústaðar (kjallara).  Ný deild leikskólans á Laugalandi fær eldra húsnæði skrifstofu Ásahrepps.  Verið er að hefja framkvæmdir við breytingu á þeirri aðstöðu þannig að hún nýtist fyrir eina deild leikskólans.
15.01.2025

Opið hús

11.01.2025

Sveitarfélögin í Rangárvallasýslu krefjast lausna við læknaskorti

Málefni heilsugæslu Rangárþings hafa verið til mikillar umræðu undanfarin misseri vegna vanda við að manna stöður lækna í héraðinu. Sú staða hefur reglulega komið upp að enginn læknir sé á vakt á stóru svæði á Suðurlandi. Þetta hefur skapað aukið álag á annað heilbrigðisstarfsfólk og óöryggi fyrir íbúa og þann gríðarlega fjölda ferðamanna sem fer um svæðið.