AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL
Ásahreppur, Flóahreppur og Grímsnes- og Grafningshreppur
Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur aðalskipulagsbreytinga og skipulagslýsinga eftirfarandi skipulagsáætlana:
1. Bitra L166223; Ný íbúðarbyggð og verslun- og þjónusta; Aðalskipulagsbreyting – 2608061
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 9. september, að kynna skipulagslýsingu á breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029. Breytingin felst í breyttri landnotkun á um 150-160 ha svæði á jörðinni Bitru, L166223; minnkun eða niðurfellingu á skógræktar- og landgræðslusvæði SL9, niðurfellingu frístundabyggðarreitanna F17 og F18, niðurfellingu hluta landbúnaðarsvæðis, stækkun verslunar- og þjónustusvæðis VÞ8 (eða skilgreiningu nýs reits) og skilgreiningu á nýju íbúðasvæði.
2. Ásmúlasel L224543; Úr landbúnaðarlandi í frístundabyggð; Aðalskipulagsbreyting – 2603067
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. september, að kynna breytingu á Aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032. Breytingin felur í sér afmörkun nýs landnotkunarreits fyrir frístundabyggð í landi Ásmúlasels.
3. Ölvisholt 4 L207867; Ferðaþjónusta, íbúðarhús, smáhýsi, smádýragarður; Aðalskipulagsbreyting – 2508069
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti á fundi sínum þann 9. september, að kynna skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029. Breytingin tekur til lands Ölvisholt 4 L207867, Ölvisholt 4A L229601 og Ölvisholt 3 L224354 vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Ölvisholt 3, 4 & 4A. Í tillögunni felst að landnotkun á hluta Ölvisholts 4 breytist í íbúðasvæði ÍB17, í gildandi aðalskipulagi er það skilgreint sem ræktað land, 2,37 ha að flatarmáli og við norðvesturjaðar þess er ein skilgreind íbúðarlóð, Ölvisholt 2, 1.946 m² að flatarmáli. Gert er ráð fyrir tveimur nýjum íbúðalóðum, hvorri rúmlega 10.000 m² að flatarmáli. Syðri hluti svæðis sem skilgreindur er sem frístundabyggð F12, óbyggt, Ölvisholt 3, 3,5 ha, breytist í svæði fyrir verslun og þjónustu, sem verður stækkun á svæði VÞ19 og verður um 4,5 ha. VÞ19, verslun og þjónusta. Veitingasala, gistirými og afþreying fyrir ferðamenn, auk 28 smáhýsa. Stærð svæðis um 6,7 ha. Um er að ræða deiliskipulag lóða fyrir 2 íbúðarhús og 28 smáhýsi fyrir ferðaþjónustu, fyrir allt að 4 gesti hvert. Fyrrverandi brugghúsi hefur verið breytt fyrir veitingasölu og gistirými og í tengslum við það er gert ráð fyrir leiksvæði fyrir börn með smádýragarði. Að auki verður hestagerði fyrir gestkomandi reiðmenn. Í uppfærðri tillögu hefur verið brugðist við stærð íbúðarlóða þannig að þær séu í samræmi við ákvæði aðalskipulags Flóahrepps. Sveitarstjórn ítrekar fyrri bókun sína um að aðgengi að hugsanlegri smáhýsabyggð fari ekki í gegnum hlaðið hjá nágrönnum og að umferð verði leidd austan við húsið sem þegar stendur á jörðinni Ölvisholt 4A.
4. Bíldsfell 3E lóð 1 L219971; Úr frístundabyggð í landbúnaðarland; Aðalskipulagsbreyting – 2510086
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. september, að kynna skipulagslýsingu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Svæðið sem breytingin nær til er Bíldsfell 3 E lóð 1 L219971. Í breytingunni felst að lóðinni er breytt úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði.
Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga aðalskipulagsbreytingar eftirfarandi skipulagsáætlunar:
5. Stóri-Háls L170827; Úr landbúnaðarsvæði í skógræktarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2601057
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. september 2026, að auglýsa tillögu sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Stóra-Hálsi (L170827) og heimiluð skógrækt á allt að 100 ha.
Samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar:
6. Viðarás L232456; Staðfesting 2ja lóða og skilmálar; Deiliskipulagsbreyting – 2608066
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. september, að auglýsa breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Viðaráss L232456. Í breytingunni felst afmörkun tveggja nýrra lóða, Asparáss 4.027,0 m² og Asparásrima 27.294,1 m², ásamt nýrri vegtengingu að þeim og að Ás 3 III-1 land.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.
Mál 1. – 4. innan auglýsingar eru skipulagsmál í kynningu frá 24.09.2026 með athugasemdarfresti til og með 16.10.2026.
Mál 5. – 6. innan auglýsingar er skipulagsmál í auglýsingu frá 24.09.2026 til og með 6.11.2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.
Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita
