Fjallskiladeild Holtamannafréttar
10. fundur
22. febrúar 2022
kl.
16:00
-
17:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
formaður
Karl Ölvirsson
meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson
meðstjórnanandi
Sævar Jónsson
meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Örn Ingvarsson gat ekki mætt til fundar.
Dagskrá
1.
Kostnaður vegna fjallskila og tillaga um álagningu fjallskila 2021
Lagt fram yfirlit yfir kostnað við fjallskil árið 2021. Í yfirlitunu kemur fram að fjallskilakostnaður árið 2021 er kr. 4.422.588 án innri leigu. Hlutur Ásahrepps (4/7) er kr. 2.527.193 og hlutur Rangárþings ytra (3/7) kr. 1.895.395.
Lögð fram tillaga fjallskiladeildar Holtamannaafréttar að álagningu fjallskila vegna ársins 2021, sem byggist á verðbreytingu gjalda frá síðasta ári skv. neysluverðsvísitölu:
Gjald fyrir land verði kr. 14.324
Gjald fyrir rekna kind verði kr. 324
Gjald fyrir ásett fé verði kr. 324
Samþykkt samhljóða og óskað eftir staðfestingu svetiarstjórna Ásahrepps og Rangárþings ytra.
Gjald fyrir land verði kr. 14.324
Gjald fyrir rekna kind verði kr. 324
Gjald fyrir ásett fé verði kr. 324
Samþykkt samhljóða og óskað eftir staðfestingu svetiarstjórna Ásahrepps og Rangárþings ytra.
2.
Úthlutun úr Landbótasjóði 2022
Lagt fram tölvuskeyti Landgræðslunnar þar sem tilkynnt er um úthlutun að upphæð kr. 3.143.000 úr Landbótasjóði til uppgræðslu á Holtamannaafrétti.
Til kynningar.
3.
Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns, aðgerðir 2021
Lögð fram skýrsla um mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns, aðgerðir 2021.
Til kynningar.