Fara í efni

Fjallskiladeild Holtamannafréttar

10. fundur
22. desember 2025 kl. 13:00 - 13:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson formaður
Karl Ölvirsson meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson meðstjórnanandi
Sævar Jónsson meðstjórnanandi
Kristín Hreinsdóttir meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Kostnaður vegna fjallskila og tillaga um álagningu fjallskila 2025
Málsnúmer 2512033
Lagt fram kostnaðaryfirlit vegna fjallskila á Holtamannaafrétti 2025. Heildarkostnaður vegna leita: kr: 5.808.101 sem er um 6,67% hækkun frá síðasta ári. Af þeim kostnaði er hlutur Ásahrepps 4/7: kr. 3.318.915 og hlutur Rangárþings ytra 3/7: kr. 2.489.186.
Lögð fram tillaga fjallskiladeildar Holtamannaafréttar að álagningu fjallskila vegna ársins 2025 sem byggist á verðbreytingu gjalda frá síðasta ári skv. neysluverðsvísitölu: Gjald fyrir land verði kr. 18.203
Gjald fyrir rekna kind verði kr. 412
Gjald fyrir ásett fé kr. 412
Samþykkt samhljóða og óskað eftir staðfestingu sveitarstjórna Ásahrepps og Rangárþings ytra.
2.
Minnisblað, mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns 2025
Málsnúmer 2512034
Lagt fram minnisblað frá Landi og skógi, dags. 18. desember 2025, Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns 2025, ásamt fylgiskjali 1, Skoðunarferð um uppgræðslur.
Til kynningar.