Fjallskiladeild Holtamannafréttar
3. fundur
14. desember 2022
kl.
15:00
-
16:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
formaður
Karl Ölvirsson
meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson
meðstjórnanandi
Sævar Jónsson
meðstjórnanandi
Vilberg Skúlason
meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Jón G. Valgeirsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Kostnaður vegna fjallskila og tillaga um álagningu fjallskila 2022
Lagt fram yfirlit yfirlit yfir kostnað við fjallskil árið 2022. Í yfirlitinu kemur fram að fjallskilakostnaður árið 2022 er kr. 4.694.605. Hlutur Ásahrepps (4/7) er kr. 2.682.631 og hlutur Rangárþings ytra (3/7) kr. 2.011.974.Lögð fram tillaga fjallskiladeildar Holtamannaafréttar að álagningu fjallskila vegna ársins 2022, sem byggist á verðbreytingu gjalda frá síðasta ári skv. neysluverðsvísitölu:Gjald fyrir land verði kr. 15.513Gjald fyrir rekna kind verði kr. 351Gjald fyrir ásett fé: kr. 351
Samþykkt samhljóða og óskað eftir staðfestingu sveitarstjórna Ásahrepps og Rangárþings ytra.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar beinir því til sveitarstjórnanna að nauðsynlegt er að reikna út kostnað miðað við fjárlausan afrétt líkt og gert hefur verið fyrir Landmannaafrétt og Rangárvallaafrétt.

2.
Deiliskipulög skálasvæða á Holtamannaafrétti
Lagðar fram tillögur að deiliskipulögum skálasvæða á Holtamannaafrétti. Um er að ræða Hald, Gásagust, Versali og Hvanngiljahöll. Verið er að vinna deiliskipulag fyrir Hrauneyjafossvirkjun þar sem Þóristungur verða hluti af.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar gerir engar athugasemdir við framlögð drög að deiliskipulögum.
3.
Uppgræðsla á Holtamannaafrétti
Ísleifur Jónasson gerði grein fyrir þeim verkefnum sem lúta að uppgræðslu á Holtamannaafrétti sumarið 2022 og hverjar áætlanir eru fyrir næsta ár. Samningurinn við Landsvirkjun vegna mótvægisaðgerða Sporðöldulóns árið 2023 er 24 tonn af tilbúnum áburði og 60 tonn af kjötmjöli.
Samþykkt samhljóða að fela Ísleifi að kanna möguleika á því að skipta yfir í dreifingu kjötmjöls í stað tilbúins áburðar, það sem lýtur að áburðardreifingu sem gerð er vegna styrks úr landbótasjóði.
Samþykkt samhljóða að fela Ísleifi að kanna möguleika á því að skipta yfir í dreifingu kjötmjöls í stað tilbúins áburðar, það sem lýtur að áburðardreifingu sem gerð er vegna styrks úr landbótasjóði.