Fjallskiladeild Holtamannafréttar
3. fundur
10. ágúst 2026
kl.
15:00
-
15:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Sigurður Óskar Óskarsson
formaður
Hulda Brynjólfsdóttir
Karl Ölvisson
Óskar Ólafsson
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson
skrifstofustjóri
Sævar Jónsson er forfallaður, sem og Sigfús varamaður hans.
Dagskrá
1.
Ákvörðun um réttardag á Holtamannaafrétti
Taka þarf ákvörðun um réttardag á Holtamannafrétti árið 2026.
Sigurður Óskar lagði fram tillögu að réttardegi. Samþykkt samhljóða að réttað verði í Haldi og á Þóristungum þann 6. september 2026 og réttarstörf hefjist klukkan 9:00
Heimilt er að seinka fyrstu leit og réttum á Þóristungum um eina viku.
Reiknað með að fara í eftirleitir í viku 39.
Heimilt er að seinka fyrstu leit og réttum á Þóristungum um eina viku.
Reiknað með að fara í eftirleitir í viku 39.
2.
Ákvörðun um leitarstjórn á Holtamannaafrétti
Taka þarf ákvörðun um leitarstjórn á Holtamannaafrétti árið 2026.
Samþykkt samhljóða að Ísleifur Jónasson verði leitarstjóri á Búðarhálsi í fyrri leitum og Tyrfingur Sveinsson verði leitarstjóri í seinni leitum. Karl Ölvisson verður leitarstjóri á Þóristungum.
Leitarstjórum er falið að halda til haga upplýsingum um fjölda fullorðinna kinda sem reknar hafa verið í afrétt og koma þeim upplýsingum til skrifstofu Ásahrepp.
Leitarstjórum er falið að halda til haga upplýsingum um fjölda fullorðinna kinda sem reknar hafa verið í afrétt og koma þeim upplýsingum til skrifstofu Ásahrepp.
3.
Ákvörðun um þóknanir vegna fjallferða á Holtamannaafrétti
Taka þarf ákvörðun um laun og þóknanir vegna fjallferða á Holtamannaafrétti árið 2026.
Lögð fram tillaga sem byggir á uppreikningi miðað við NVT.
Umsjón á leit: 38.900 kr
Matráður á dag: 27.900 kr
Fjallmaður á dag: 16.000 kr
Fjórhjól á dag: 23.500 kr
Hestur á dag: 1.500 kr
Fæði á dag: 10.900 kr
Bíll á km: 150 kr
Tryggingar fjórhjóla eru á ábyrgð eigenda.
Samþykkt samhljóða.
Umsjón á leit: 38.900 kr
Matráður á dag: 27.900 kr
Fjallmaður á dag: 16.000 kr
Fjórhjól á dag: 23.500 kr
Hestur á dag: 1.500 kr
Fæði á dag: 10.900 kr
Bíll á km: 150 kr
Tryggingar fjórhjóla eru á ábyrgð eigenda.
Samþykkt samhljóða.
4.
Uppgræðsla á Holtamannaafrétti
Yfirferð á störfum vegna uppgræðslu á Holtamannaafrétti árið 2026.
Sigurður Óskar gerði grein fyrir störfum við uppgræðslu á Holtamannaafrétti sumarið 2026. Lögð fram greinargerð/fundargerð frá 25. júlí, þar sem fulltrúar Lands- og skóga, Ásahrepps og Landsvirkjunar hittust: Skoðunarferð um uppgræðslusvæði í nágrenni Sporðöldulóns.
Til kynningar.
Til kynningar.