Fjallskiladeild Holtamannafréttar
4. fundur
8. júní 2023
kl.
17:00
-
17:40
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
formaður
Karl Ölvirsson
meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson
meðstjórnanandi
Sævar Jónsson
meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Jón G. Valgeirsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Vilberg Skúlason boðaði forföll.
Dagskrá
1.
Úthlutun úr Landbótasjóði 2023
Lagt fram tölvuskeyti Landgræðslunnar, Landbótasjóði, dags. 28. febrúar 2023, þar sem kynnt er úthlutun úr Landbótasjóði fyrir árið 2023. Ásahreppur fékk úthlutað kr. 3.454.000 vegna verkefnanna á árinu 2023.
Samþykkt samhljóða að fela formanni fjallskiladeildar Holtamannaafréttar að sjá um framkvæmd áburðardreifingar.
2.
Hesthúsið á Þóristungum
Lagt fram tölvupóstur frá Fish Partners, dags. 31. maí 2023, þar sem þeir óska eftir að fá að nýta hluta af hesthúsinu, fóðurganginn. Þeir myndu þá setja gólf í þann hluta hússins og millivegg með hurð sem snýr að stíunum. Með þessu eru þeir að útbúa aðstöðu fyrir leiðsögumenn sína.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar samþykkir fyrir sitt leyti að heimila Fish Partners að gera þessa breytingu samkvæmt fyrirliggjandi beiðni. Jafnframt verði haft samband við Tómas Hauk Tómasson um frágang málsins.
3.
Greining kostnaðar vegna hreinsunar afréttar, ef ekki er rekið á Holtamannaafrétt
Lögð fram drög að útreikningi á kostnaði við hreinsun Holtamannaafréttar, miðað við að ekki sé rekið fé á afrétt.
Stjórn fjallskiladeildar Holtamannaafréttar er samþykk þeirri nálgun sem viðhöfð er við þennan útreikning. Uppfæra þarf einingarverð og reikna betur út kostnað við akstur og nýtingu fjórhjóla. Málið verður tekið aftur til umfjöllunar á næsta fundi stjórnar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar.