Fjallskiladeild Holtamannafréttar
5. fundur
21. ágúst 2023
kl.
16:00
-
16:40
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
formaður
Karl Ölvirsson
meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson
meðstjórnanandi
Sævar Jónsson
meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Jón G. Valgeirsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Vilberg Skúlason boðaði forföll og ekki var hægt að kalla inn varamann.
Dagskrá
1.
Ákvörðun um réttardag á Holtamannaafrétti
Taka þarf ákvörðun um réttardag á Holtamannaafrétti árið 2023. Ísleifur lagði fram tillögu að réttardegi.
Samþykkt samhljóða að réttað verði í Haldi og á Þóristungum þann 10. september 2023 og réttarstörf hefjast klukkan 9:00.
Reiknað er með að fara í eftirleitir í 39. viku.
Reiknað er með að fara í eftirleitir í 39. viku.
2.
Ákvörðun um leitarstjórn á Holtamannaafrétti
Taka þarf ákvörðun um leitarstjórn á Holtamannaafrétti árið 2023.
Samþykkt samhljóða að Ísleifur Jónasson verði leitarstjóri á Búðarhálsi í fyrri leitum og Tyrfingur Sveinsson verði leitarstjóri í seinni leitum.
Karl Ölvisson verður leitarstjóri á Þóristungum.
Leitarstjórum er falið að halda til haga upplýsingum um fjölda fullorðinna kinda og koma þeim upplýsingum til skrifstofu Ásahrepps.
Karl Ölvisson verður leitarstjóri á Þóristungum.
Leitarstjórum er falið að halda til haga upplýsingum um fjölda fullorðinna kinda og koma þeim upplýsingum til skrifstofu Ásahrepps.
3.
Ákvörðun um þóknanir vegna fjallferða á Holtamannaafrétti
Taka þarf ákvörðun um laun og þóknanir vegna fjallferða á Holtamannaafrétti árið 2023.
Lögð fram tillaga sem byggir á uppreikningi miðað við NVT.
Umsjón á leit. kr. 33.400
Ráðskona á dag: kr. 24.000
Fjallmaður á dag: kr. 13.800
Fjórhjól á dag: kr. 20.100
Hestur á dag: kr. 1.150
Fæði á dag: kr. 8.700
Bíll á km: kr. 127
Tryggingar fjórhjóla eru á abyrgð eigenda.
Samþykkt samhljóða.
Umsjón á leit. kr. 33.400
Ráðskona á dag: kr. 24.000
Fjallmaður á dag: kr. 13.800
Fjórhjól á dag: kr. 20.100
Hestur á dag: kr. 1.150
Fæði á dag: kr. 8.700
Bíll á km: kr. 127
Tryggingar fjórhjóla eru á abyrgð eigenda.
Samþykkt samhljóða.
4.
Dreifing kjötmjöls á Holtamannaafrétti
Samkvæmt samningi við Landsvirkjun skal dreifa 60 tonnum af kjötmjöli á Holtamannaafrétti nú í haust. 20 tonn innan uppgræðslusvæðis og 40 tonn á athafnasvæði.
Ísleifi og Valtý falið að sjá um kaup á kjötmjöli, að beiðni Landsvirkjunar, og fá verktaka til verksins. Kostnaður verður innheimtur hjá Landsvirkjun eftir að verki er lokið.
5.
Bréf Bændasamtaka Íslands um lausagöngu búfjár
Lagt fram bréf Bændasamtaka Íslaands, dags. 6. júlí 2023, sem sent var til Sambands íslenskra sveitarfélaga og allra sveitarfélaga. Byggðaráð Rangárþings ytra hefur vísað þessu bréfi til fjallskiladeildar til skoðunar.
Umræða var um efni bréfsins og ljóst er að ýmis álitamál eru fyrir hendi og oft á tíðum bundin mismunandi aðstæðum. Nauðsynlegt er að halda vöku sinni yfir þeirri umræðu sem er í gangi og verður næstu misserin.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.