Fjallskiladeild Holtamannafréttar
6. fundur
12. desember 2023
kl.
16:00
-
16:40
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
formaður
Karl Ölvirsson
meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson
meðstjórnanandi
Sævar Jónsson
meðstjórnanandi
Kristín Hreinsdóttir
meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Jón G. Valgeirsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Kostnaður vegna fjallskila og tillaga um álagningu fjallskila 2023
Lagt fram kostnaðaryfirlit vegna fjallskila á Holtamannaafrétti árið 2023.Heildarkostnaður vegna leita: kr. 4.955.098 sem er um 5,6% hækkun frá fyrra ári.Af þeim kostnaði er hlutur Ásahrepps 4/7: kr. 2.831.485 og hlutur Rangárþings ytra 3/7: kr. 2.123.613.
Lögð fram tillaga fjallskiladeildar Holtmannaafréttar að álagningu fjallskila vegna ársins 2023 sem byggist á verðbreytingu gjalda frá síðasta ári skv. neysluverðsvísitölu:
Gjald fyrir land verði kr. 16.755
Gjald fyrir rekna kind verði kr. 380
Gjald fyrir ásett fé: kr. 380
Samþykkt samhljóða og óskað eftir staðfestingu sveitarstjórna Ásahrepps og Rangárþings ytra.
Gjald fyrir land verði kr. 16.755
Gjald fyrir rekna kind verði kr. 380
Gjald fyrir ásett fé: kr. 380
Samþykkt samhljóða og óskað eftir staðfestingu sveitarstjórna Ásahrepps og Rangárþings ytra.
2.
Uppgræðsla á Holtamannaafrétti
Ísleifur Jónasson gerir grein fyrir uppgræsðslustarfi á Holtamannaafrétti sumarið 2023.
Ísleifur gerði grein fyrir dreifingu tilbúins áburðar og kjötmjöls á Holtamannaafrétti árið 2023. Skv. samningi við Landsvirkjun þá var dreift 24 tonnum af tilbúnum áburði vegna mótvægisaðgerða Sporðöldulóns, en jafnframt var dreift 60 tonnum af kjötmjöli í haust.