Fara í efni

Fjallskiladeild Holtamannafréttar

7. fundur
19. ágúst 2024 kl. 16:00 - 17:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson formaður
Karl Ölvirsson meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson meðstjórnanandi
Sævar Jónsson meðstjórnanandi
Kristín Hreinsdóttir meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Ákvörðun um réttardag á Holtamannaafrétti
Málsnúmer 2108011
Taka þarf ákvörðun um réttardag á Holtamannaafrétti árið 2024.
Ísleifur Jónasson lagði fram tillögu að réttardegi. Samþykkt að réttað verði í Haldi og á Þóristungum þann 8. september 2024 og réttarstörf hefjist klukkan 9:00.
Reiknað með að fara í eftirleitir í 39. viku.
2.
Ákvörðun um leitarstjórn á Holtamannaafrétti
Málsnúmer 2108012
Taka þarf ákvörðun um leitarstjórn á Holtamannaafrétti árið 2024.
Samþykkt samhljóða að Ísleifur Jónasson verði leitarstjóri á búðarhálsi í fyrri leitum og Tyrfingur Sveinsson vrði leitarstjóri í seinni leitum. Karl Ölvisson verður leitarstjóri á Þóristungum. Leitarstjórum er falið að halda til haga upplýsingum um fjölda fullorðinna kinda sem reknar hafa verið í afrétt og koma þeim upplýsingum til skrifstofu Ásahrepps.
3.
Ákvörðun um þóknanir vegna fjallferða á Holtamannaafrétti
Málsnúmer 2108013
Taka þarf ákvörðun um laun og þóknanir vegna fjallferða á Holtamannaafrétti árið 2024.
Lögð fram tillaga sem byggir á uppreikningi miðað við NVT. Umsjón á leit. kr. 35.500
Ráðskona á dag: kr. 25.500
Fjallmaður á dag: kr. 14.600
Fjórhjól á dag: kr. 21.400
Hestur á dag: kr. 1.300
Fæði á dag: kr. 10.000
Bíll á km: kr. 141
Tryggingar fjórhjóla eru á abyrgð eigenda.

Samþykkt samhljóða.
4.
Úthlutun úr Landbótasjóði 2024
Málsnúmer 2403024
Lagt fram bréf Lands og skóga, dags, 8. mars 2024, þar sem tilkynnt er að Ásahreppur hefur fengið úthlutað úr Landbótasjóði kr. 3.010.000 til dreifingar á tilbúnum áburði á Holtamannaafrétti líkt og undanfarin ár.
Til kynningar
5.
Uppgræðsla á Holtamannaafrétti
Málsnúmer 2212014
Ísleifur Jónasson gerði grein fyrir störfum við uppgræðslu á Holtamannaafrétti sumarið 2024.
Til kynningar.