Fara í efni

Fjallskiladeild Holtamannafréttar

8. fundur
12. desember 2024 kl. 16:00 - 16:25
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson formaður
Karl Ölvirsson meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson meðstjórnanandi
Sævar Jónsson meðstjórnanandi
Kristín Hreinsdóttir meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Kostnaður vegna fjallskila og tillaga um álagningu fjallskila 2024
Málsnúmer 2412012
Lagt fram kostnaðaryfirlit vegna fjallskila á Holtamannaafrétti 2024.Heildarkostnaður vegna leita: kr: 5.444.995 sem er um 10% hækkun frá síðasta ári.Af þeim kostnaði er hlutur Ásahrepps 4/7: kr. 3.111.426 og hlutur Rangárþings ytra 3/7: kr. 2.333.569.
Lögð fram tillaga fjallskiladeildar Holtamannaafréttar að álagningu fjallskila vegna ársins 2024 sem byggist á verðbreytingu gjalda frá síðasta ári skv. neysluverðsvísitölu:

Gjald fyrir land verði kr. 17.554
Gjald fyrir rekna kind verði kr. 398
Gjald fyrir ásett fé kr. 398

Samþykkt samhljóða og óskað eftir staðfestingu sveitarstjórna Ásahrepps og Rangárþings ytra.
2.
Minnisblað um mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns 2024
Málsnúmer 2412006
Lagt fram minnisblað frá Landi og skógi, dags. 21. nóvember 2024, Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns 2024.
Til kynningar.