Fjallskiladeild Holtamannafréttar
8. fundur
22. febrúar 2021
kl.
17:00
-
18:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
formaður
Karl Ölvirsson
meðstjórnanandi
Örn Ingi Ingvarsson
meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson
meðstjórnanandi
Sævar Jónsson
meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Kostnaður vegna fjallskila og tillaga um álagningu fjallskila 2020
Lagt fram yfirlit yfir kostnað við fjallskil árið 2020. Í yfirlitinu kemur fram að fjallskilakostnaður árið 2020 er kr. 4.225.669 án innri leigu. Hlutur Ásahrepps (4/7) er kr. 2.414.668 og hlutur Rangárþings ytra (3/7) kr. 1.811.001.
Lögð fram tillaga fjallskiladeildaar Holtamannaafréttar að álagningu fjallskila vegna ársins 2020 sem byggist á verðbreytingu gjalda frá síðasta ári skv. neysluverðsvísitölu:
Gjald fyrir land verði kr. 13.552
Gjald fyrir rekna kind verði kr. 307
Gjald fyrir ásett fé verði kr. 307
Samþykkt samhljóða og óskað eftir staðfestingu sveitarstjórna Ásahrepps og Rangárþings ytra.
Gjald fyrir land verði kr. 13.552
Gjald fyrir rekna kind verði kr. 307
Gjald fyrir ásett fé verði kr. 307
Samþykkt samhljóða og óskað eftir staðfestingu sveitarstjórna Ásahrepps og Rangárþings ytra.
2.
Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns, Lr 2021_01
Lögð fram skýrsla Lr 2021/01 Mótvægisaðgerðir vegan Sporðöldulóns, aðgerðir 2020
Til kynningar.