Fjallskiladeild Holtamannafréttar
9. fundur
11. ágúst 2025
kl.
15:00
-
15:40
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
formaður
Karl Ölvirsson
meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson
meðstjórnanandi
Sævar Jónsson
meðstjórnanandi
Kristín Hreinsdóttir
meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Jón G. Valgeirsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Ákvörðun um réttardag á Holtamannaafrétti
Taka þarf ákvörðun um réttardag á Holtamannaafrétti árið 2025.
Ísleifur Jónsson lagði fram tillögu að réttardegi. Samþykkt að réttað verði í Haldi og á Þóristungum þann 7. september 2025 og réttarstörf hefjist klukkan 9:00. Heimilt er að seinka fyrstu leit og réttum á Þóristungum um eina viku. Reiknað með að fara í eftirleitir í 39. viku.
2.
Ákvörðun um leitarstjórn á Holtamannaafrétti
Taka þarf ákvörðun um leitarstjórn á Holtamannaafrétti árið 2025.
Samþykkt samhljóða að Ísleifur Jónasson verði leitarstjóri á Búðarhálsi í fyrri leitum og Tyrfingur Sveinsson verði leitarstjóri í seinni leitum. Karl Ölvisson verður leitarstjóri á Þóristungum. Leitarstjórum er falið að halda til haga upplýsingum um fjölda fullorðinna kinda sem reknar hafa verið í afrétt og koma þeim upplýsingum til skrifstofu Ásahrepps.
3.
Ákvörðun um þóknanir vegna fjallferða á Holtamannaafrétti
Taka þarf ákvörðun um laun og þóknanir vegna fjallferða á Holtamannaafrétti árið 2025.
Lögð fram tillaga sem byggir á uppreikningi miðað við NVT.
Umsjón á leit: kr. 37.000
Matráður á dag: kr. 26.500
Fjallmaður á dag: kr. 15.200
Fjórhjól á dag: kr. 22.300
Hestur á dag: kr. 1.400
Fæði á dag: kr. 10.400
Bíll á km: kr. 141
Tryggingar fjórhjóla eru á ábyrgð eigenda.
Samþykkt samhljóða.
Umsjón á leit: kr. 37.000
Matráður á dag: kr. 26.500
Fjallmaður á dag: kr. 15.200
Fjórhjól á dag: kr. 22.300
Hestur á dag: kr. 1.400
Fæði á dag: kr. 10.400
Bíll á km: kr. 141
Tryggingar fjórhjóla eru á ábyrgð eigenda.
Samþykkt samhljóða.
4.
Úthlutun úr Landbótasjóði
Lagt fram bréf Lands og skógar, dags. 3. mars 2025 þar sem veittar eru upplýsingar um úthlutun styrks úr Landbótasjóði 2025.
Til kynningar.
5.
Uppgræðsla á Holtamannaafrétti
Ísleifur Jónasson gerði grein fyrir störfum við uppgræðslu á Holtamannaafrétti sumarið 2025.
Til kynningar.