Fara í efni

Fjallskiladeild Holtamannafréttar

9. fundur
23. ágúst 2021 kl. 16:00 - 16:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson formaður
Karl Ölvirsson meðstjórnanandi
Örn Ingi Ingvarsson meðstjórnanandi
Óskar Ólafsson meðstjórnanandi
Sævar Jónsson meðstjórnanandi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Ákvörðun um réttardag á Holtamannaafrétti
Málsnúmer 2108011
Taka þarf ákvörðun um réttardag á Holtamannaafrétti árið 2021. Ísleifur lagði fram tillögu að réttardegi.
Samþykkt samhljóða að réttað verði í Haldi og á Þóristungum þann 12. september 2021 og réttarstörf hefjast klukkan 9:00.
Reiknað er með að fara í eftirleitir í 39. viku.
2.
Ákvörðun um leitarstjórn á Holtamannaafrétti
Málsnúmer 2108012
Taka þarf ákvörðun um leitarstjórn á Holtamannaafrétti árið 2021.
Samþykkt samhljóða að Ísleifur Jónasson verði leitarstjóri á Búðarhálsi í fyrri leitum og Tyrfingur Sveinsson verði leitarstjóri í seinni leitum.
Karl Ölvisson verður leitarstjóri á Þóristungum.
Leitarstjórum er falið að halda til haga upplýsingum um fjölda fullorðinna kinda og koma þeim upplýsingum til skrifstofu Ásahrepps.
Leitarstjórar eru skipaðir smitvarnarfulltrúar við hverja rétt.
Samþykkt samhljóða.
3.
Ákvörðun um þóknanir vegna fjallferða á Holtamannaafrétti
Málsnúmer 2108013
Taka þarf ákvörðun um laun og þóknanir vegna fjallferða á Holtamannaafrétti árið 2021.
Lögð fram tillaga sem byggir á uppreikningi miðað við NVT.
Umsjón á leit. kr. 28.200
Ráðskona á dag: kr. 20.300
Fjallmaður á dag: kr. 11.650
Fjórhjól á dag: kr. 17.000
Hestur á dag: kr. 1.030
Fæði á dag: kr. 7.900
Bíll á km: kr. 110
Tryggingar fjórhjóla eru á abyrgð eigenda.

Samþykkt samhljóða.