Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

1. fundur
1. júní 2026 kl. 08:30 - 12:15
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Gréta Vilborg Guðmundsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Emil Þórðarson hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Skýrsla Kjörstjórnar Ásahrepps ásamt fundargerðum kjörstjórnar
Málsnúmer 2605017
Lögð fram skýrsla Kjörstjórnar Ásahrepps, vegna sveitarstjórnaskosninga sem fram fóru 16. maí 2026, ásamt fundargerðum frá kjördegi og 24. maí.
Til kynningar.
2.
Kosning oddvita hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2605018
Kosning oddvita hreppsnefndar Ásahrepps
Kosning oddvita hreppsnefndar Ásahrepps. Ísleifur Jónasson býður sig fram í embættið.
Samþykkt samhljóða.

Jafnframt er samþykkt samhljóða að Ísleifur Jónasson fái prókúru fyrir sveitarsjóð Ásahrepps.
3.
Kosning varaoddvita hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2605019
Kosning varaoddvita hreppsnefndar Ásahrepps
Kosning varaoddvita hreppsnefndar Ásahrepps. Kristín Hreinsdóttir og Helga Björg Helgadóttir bjóða sig fram til embættisins.
Kristín hlýtur 3 atkvæði og Helga 2. Kristín er því kjörin varaoddviti.
4.
Kosning í nefndir, stjórnir og ráð samkvæmt samþykkt um stjórn og fundarsköp
Málsnúmer 2605020
Kosið er í nefndir, stjórnir og ráð í samræmi við samþykkt um stjórn og fundarsköp Ásahrepps, nr. 131/2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir eftirfarandi nefndarskipan og tilnefningar:

Fastanefndir

Atvinnu-, jafnréttis- og ferðamálanefnd, 3 aðalmenn og 3 til vara:
Aðalmenn: Hulda Björk Haraldsdóttir, formaður, Gréta Vilborg Guðmundsdóttir, Reynir Örn Pálmason.
Varamenn: Guðmundur Hreinn Grétarsson, Pétur Einarsson, Erla Brimdís Birgisdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Fjallskiladeild Holtamannaafréttar, 1 fulltrúi og annar til vara:
Aðalmaður:Emil Þórðarson.
Varamaður:Karl Ölvirsson.
Samþykkt samhljóða.

Kjörstjórn Ásahrepps, 3 aðalmenn og 3 til vara:
Aðalmenn: Kristín Ósk Ómarsdóttir, formaður, Hulda Brynjólfsdóttir, Benedikt Elvar Jónsson.
Varamenn: Vilberg Skúlason, Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg, Renate Hannemann.
Samþykkt samhljóða.

Umhverfisnefnd Ásahrepps, 3 aðalmenn og 3 til vara:
Aðalmenn: Gréta Vilborg Guðmundsdóttir, formaður, Kristín Hreinsdóttir, Ísleifur Jónasson.
Varamenn: Emil Þórðarson, Helga Björg Helgadóttir, Óðinn Örn Jóhannsson.
Samþykkt samhljóða.

Brunavarnir Rangárvallasýslu bs, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Helga Björg Helgadóttir.
Varamaður:Emil Þórðarson.
Samþykkt samhljóða.

Oddi bs., 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Ísleifur Jónasson.
Varamaður:Kristín Hreinsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Samráðsnefnd Ásahrepps og Rangárþings ytra, 5 aðalmenn og 5 til vara:
Aðalmenn: Ísleifur Jónasson, Kristín Hreinsdóttir, Helga Björg Helgadóttir, Emil Þórðarson, Gréta Vilborg Guðmundsdóttir.
Varamenn: Hugrún Fjóla Hannesdóttir, Karl Ölvirsson, Hannes Brynjar Sigurgeirsson, Reynir Örn Pálmason, Hulda Björk Haraldsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Kristín Hreinsdóttir.
Varamaður:Emil Þórðarson.
Samþykkt samhljóða.

Stjórn Húsakynna bs, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Ísleifur Jónasson.
Varamaður:Helga Björg Helgadóttir.
Samþykkt samhljóða.

Stjórn Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla-og Vestur-Skaftafellssýslu bs., 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Kristín Hreinsdóttir.
Varamaður:Helga Björg Helgadóttir.
Samþykkt samhljóða.

Stjórn Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs., 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Emil Þórðarson.
Varamaður:Kristín Hreinsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Skipulagsnefnd UTU, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Ísleifur Jónasson.
Varamaður:Gréta Vilborg Guðmundsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Stjórn UTU, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Ísleifur Jónasson.
Varamaður:Gréta Vilborg Guðmundsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Almannavarnarnefnd Rangárvallasýslu, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Hugrún Fjóla Hannesdóttir.
Varamaður:Ísleifur Jónasson.
Samþykkt samhljóða.

Héraðsnefnd Rangæinga, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Kristín Hreinsdóttir.
Varamaður:Gréta Vilborg Guðmundsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Stjórn Lundar, hjúkrunar og dvalarheimilis, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Helga Björg Helgadóttir.
Varamaður:Kristín Hreinsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Verkefnabundnar nefndir:
Útivistarstígar, 3 aðalmenn og 3 til vara
Ekki kosið í nefndina - verkefni hennar færist undir Umhverfisnefnd.
Samþykkt samhljóa

Viðburðanefnd, 5 aðalmenn og 5 til vara (ný nefnd)
Aðalmenn: Ásta Berghildur Ólafsdóttir, formaður, Þráinn Ingólfsson, Hugrún Fjóla Hannesdóttir.
Varamenn: Guðmundur Hreinn Grétarsson, Gréta Vilborg Guðmundsdóttir, Vilberg Skúlason.
Samþykkt samhljóða.

Aðrar samstarfsstjórnir:
Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Gréta Vilborg Guðmundsdóttir.
Varamaður:Ísleifur Jónasson.
Samþykkt samhljóða.

Tónlistarskóli Rangæinga bs, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Helga Björg Helgadóttir.
Varamaður:Kristín Hreinsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Ungmennaráð Suðurlands (SASS), 1 aðalmaður og 1 til vara:
Tillaga að fresta tilnefningu og vísa til umræðu í Samráðsnefnd RY og Ásahrepps..
Samþykkt samhljóða.

Náttúru- og gróðurverndarnefnd Héraðsnefndar Rangæinga, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Karl Ölvirsson.
Varamaður:Hulda Brynjólfsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Fulltrúar á ársþing og ársfundi stofnana.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Ísleifur Jónasson.
Varamaður:Kristín Hreinsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Aðalfundur SASS, 2 aðalmenn og 2 til vara:
Aðalmenn: Ísleifur Jónasson, Kristín Hreinsdóttir.
Varamenn: Hannes Brynjar Sigurgeirsson, Gréta Vilborg Guðmundsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Aðalfundur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, 2 aðalmenn og 2 til vara:
Aðalmenn: Ísleifur Jónasson, Kristín Hreinsdóttir.
Varamenn: Hannes Brynjar Sigurgeirsson, Gréta Vilborg Guðmundsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Aðalfundur Bergrisans bs., 2 aðalmenn og 2 til vara:
Aðalmenn: Kristín Hreinsdóttir, Hulda Björk Haraldsdóttir.
Varamenn: Helga Björg Helgadóttir, Reynir Örn Pálmason.
Samþykkt samhljóða.

Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Gréta Vilborg Guðmundsdóttir.
Varamaður:Kristín Hreinsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður:Ísleifur Jónasson.
Varamaður:Emil Þórðarson.
Samþykkt samhljóða.

Fulltrúi í stjórn Skógarsafns, 1 aðalmaður og 1 til vara:
Aðalmaður: Gréta V. Guðmundsdóttir
Varamaður: Kristín Hreinsdóttir
Samþykkt samhljóða
5.
Fyrirkomulag stjórnsýslu Ásahrepps og ákvörðun um fasta fundartíma
Málsnúmer 2605022
Ísleifur Jónasson opnar umræðu um stjórnsýslu Ásahrepps næsta kjörtímabils.Fundartími hreppsnefndar hefur undanfarið verið 3. miðvikudagur í mánuði og hefst klukkan 8:30. Lögð fram tillaga að endurskoðaðri fundaráætlun fyrir árið 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Guðmundur Einarsson verði ritari hreppsnefndar.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fjölga fundum hreppnefndar, þannig að þeir verði tveir í mánuði. Þetta er gert til að bæta þjónustu og auka skilvirkni. Fundir hreppsnefndar verða 1. og 3. miðvikudag hver mánaðar, kl 8:30, haldnir á skrifstofunni Laugalandi.
Skrifstofustjóra og oddvita falið að stilla upp fundardagatali og leggja fyrir næsta fund.

Hreppsnefnd er heimilt að fella niður reglulega fundi vegna sumarleyfa og samþykkir hreppsnefnd samhljóða að sumarleyfi hreppsnefndar verði í júlímánuði. Komi upp brýn mál er oddvita þó heimilt að kalla saman fund í sumarleyfismánuði.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að endurskoða kjör hreppsnefndarfulltrúa í ljósi þess að fundum er fjölgað. Ákveðið að mánaðarleg þóknun hækki úr 8% í 10% af þingfararkaupi.
6.
Starf oddvita Ásahrepps
Málsnúmer 2605021
Vegna breytinga í starfsmannahaldi hjá hreppnum, þar sem bæði sveitarstjóri og skrifstofumanneskja hafa látið af störfum og skrifstofustjóri nýlega hafið störf, þá þarf að skilgreina störf oddvita með tillit til þess og annarra atriða sem koma til álita í þessu sambandi, svo sem samþykktir reikninga og lagalega ábyrgð sem fylgt hefur stöðu sveitarstjóra Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að í ljósi þess að umfang og ábyrgð oddvitaembættisins hefur aukist, að þóknun hans aukist í samræmi við það. Að auki mun oddviti verða með fasta viðveru einn dag í viku á skrifstofu sveitarfélagsins. Starfshlutfall hans eykst því úr 25% í 40%. Samþykkt að endurskoða það að þremur mánuðum liðnum.

Varaoddvita falið, ásamt skrifstofustjóra, að stilla upp ráðningarsamningi við oddvita.
7.
Aðgangur skrifstofustjóra að fundargátt UTU
Málsnúmer 2605023
Skrifstofustjóri Ásahrepps hefur ekki aðgang að fundargátt UTU. Slíkt er nauðsynlegt vegna rekstur skrifstofunnar, við undirbúning og notkun á fundum hreppsnefndar í vissum tilfellum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að óska eftir því við stjórn UTU að skrifstofustjóri Ásahrepps fái aðgang að fundargátt þeirra.
8.
Beiðni um styrk við verkefni
Málsnúmer 2605030
Smáspunaverksmiðjan Uppspuni óskar eftir styrk við samkeppni um hönnun á lopapeysu fyrir kvenbændur.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða styrk að upphæð 50.000 kr
9.
Fundargerð 326. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2605032
Lögð fram fundargarð 326. fundar skipulagsnefndar UTU, ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU númer 26-251.
Mál úr fundargarð 326. fundar skipulagsnefndar UTU:


Mál 1. Vörðuholt L209712; Vegagerð; Framkvæmdarleyfi - 2605060
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Vörðuholts L209712 í Ásahreppi. Í framkvæmdinni felst vegagerð frá innkeyrsluvegi við Vörðuholt að bílastæði lóðarinnar.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að útgáfa framkvæmdaleyfis verði samþykkt á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Mál 2. Vörðuholt (L209712); byggingarheimild; geymsla - 2605045
Fyrir liggur umsókn móttekin 12.5.2026 um byggingarheimild til að byggja 160 m2 geymslu á jörðinni Vörðuholt (L209712) í Ásahreppi.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Mál 3. Ásmúli Múli (L165328); byggingarheimild; sumarhús - 2605056
Móttekin var umsókn þann 18.05.2026 um byggingarheimild fyrir 56 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Ásmúli Múli (L165328) í Ásahrepp.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


Mál 4. Ásmundarstaðir 1 3/5 L165265; Ásmundarstaðir 1B; Stofnun lóðar - 2509052
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 17.02.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar skiptingu jarðar. Óskað er eftir að stofna 65,6 ha landeign, Ásmundarstaðir 1B, úr jörðinni Ásmundarstaðir 1 3/5 L165265 skv. meðfylgjandi merkjalýsingu.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu með fyrirvara um umsögn Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar vegtengingar.


Mál 31. Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 20.05.2026 - 26-251 - 2605002F

Til kynningar.
10.
Fundargerð 93. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2605007
Lögð fram fundargerð 93. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
11.
Fundargerðir 91. og 92. funda stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2605029
Lagðar fram fundargerðir 91. og 92. funda stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Málsnúmer 2605024
Lögð fram fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
13.
Héraðssambandið Skarphéðinn; árssýrsla 2025, þinggerð og samþykktar tillögur héraðsþings HSK.
Málsnúmer 2605016
Lögð fram gögn frá Héraðssambandinu Skarphéðni. Árssýrsla 2025, þinggerð og samþykktar tillögur héraðsþings HSK.
Til kynningar.
14.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2605025
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga, 23.- 25. september 2026.
Til kynningar.
15.
Aðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, 25. júní 2026
Málsnúmer 2605031
Aðalfundur SASS 2026 verður haldinn í Versölum í Þorlákshöfn fimmtudaginn 25. júní nk.
Til kynningar.
16.
Markaðsstofu Suðurlands, hvers virði ferðaþjónustan er í Ásahreppi
Málsnúmer 2605026
Lögð fram gögn frá Markaðsstofu Suðurlands; hvers virði ferðaþjónustan er í Ásahreppi.
Til kynningar.
17.
Upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti eftir fund HES og Atvinnuveganefnd og Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis
Málsnúmer 2605027
Lögð fram gögn frá Heilbrigðiseftirliti með upplýsingum eftir fund HES og Atvinnuveganefnd og Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Til kynningar.
18.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2605028
Samkvæmt fundaráætlun er næsti fundur hreppsnefndar settur 24. júní nk.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að næsti fundur hreppsnefndar verði mánudaginn 29. júní, kl 8:30.